Tónlist

Gítar­leikarinn Duane Eddy er látinn

Atli Ísleifsson skrifar
Duane Eddy var tekinn inn í Frægðarhöll rokksins árið 1994.
Duane Eddy var tekinn inn í Frægðarhöll rokksins árið 1994. AP

Bandaríski gítarleikarinn Duane Eddy, sem af mörgum er talinn vera einn af upphafsmönnum rokksins, er látinn. Hann varð 86 ára gamall.

Eiginkona hans, Deed, segir hann hafa andast af völdum krabbameins í Tennessee síðastliðinn þriðjudag.

Duane Eddy, sem var kallaður Konungur twang-sins (e. King of Twang), vann til fjölda Grammy-verðlauna á ferli sínum og átti röð smella á sjötta og sjöunda áratugarins. Hann kom aftur lagi á vinsældarlista með nýrri útgáfu á lagi sínu Peter Gunn árið 1986.

Eddy var tekinn inn í Frægðarhöll rokksins árið 1994.

Talsmaður tónlistarmannsins segir í samtali við Variety að Duane Eddy hafi veitt heilli kynslóð gítarista innblástur með sínu einkennandi twang-gítarhljóði sínu. Hann hafi verið fyrsti gítarguð rokksins og einstaklega hógvær og einstakur maður. „Hans verður sárt saknað.“

Í frétt BBC segir að hann hafi verið sjálflærður og á ferli sínum veitt tónlistarfólki – allt frá Bítlunum til Blondie – innblástur. Hann seldi rúmlega 100 milljónir platna á rúmlega sjö áratuga löngum ferli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×