Innlent

Skoða mismunun í dönskum háskóla

Þorgils Jónsson skrifar
Viðskiptaháskólinn í Kaupmannahöfn hefur neitað íslenskum námsmönnum um skólavist vegna meintrar vankunnáttu í dönsku.
Viðskiptaháskólinn í Kaupmannahöfn hefur neitað íslenskum námsmönnum um skólavist vegna meintrar vankunnáttu í dönsku. Mynd/CBS
Menntamálaráðuneytið kannar nú hvort íslenskir námsmenn hafi mátt þola mismunun þegar þeim hefur verið synjað um skólavist við Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn (CBS) vegna meintrar ófullnægjandi dönskukunnáttu.

Skólinn krefst þess að íslenskir umsækjendur hafi lokið átján einingum í dönsku í framhaldsskóla. Þó að dönskum skólum sé almennt frjálst að setja sín eigin inntökuskilyrði kannar íslenska menntamálaráðuneytið nú hvort um mismunun sé að ræða. Í samningum milli Norðurlandanna er miðað við að öll Norðurlandamál séu metin til jafns milli landanna.

Óvíst er hversu margir Íslendingar hafa þurft að hætta við að sækja nám í Danmörku vegna málsins, en samkvæmt upplýsingum frá íslenska sendiráðinu í Kaupmannahöfn hafa sex námsmenn kvartað undan CBS vegna svipaðra mála. Þrír þeirra hafa kært ákvörðunina til menntamálaráðuneytisins.

María Ósk Bender er á meðal þeirra, en hún flutti út með fjölskyldu sína í sumar, í góðri trú um að hún fengi að hefja meistaranám í mannauðsstjórnun í CBS. Hún hafði fengið inni í skólanum en var svo beðin um að senda inn upplýsingar um námsferil í dönsku.

„Þá byrjaði ballið. Skólinn krafðist átján eininga í dönsku en níu einingar þarf til stúdentsprófs á Íslandi. Það er í raun einstakt að nokkrir hafi lokið átján einingum.“

María Ósk Bender
María fékk einmitt það uppáskrifað frá menntamálaráðuneytinu og sendi út til skólans.

„Þá hélt ég að ég væri orðin gulltryggð, og við fluttum út. Svo var ég búin að vera í skólanum í viku þegar ég fæ loks svar og þeir halda því til streitu að hægt sé að ná átján einingum á Íslandi.“

María hefur kært úrskurðinn til yfirstjórnar skólans, en er ekki bjartsýn á að það gangi eftir, því að annar Íslendingur hefur þegar fengið synjun og kært það til danskra menntamálayfirvalda.

María segir framhaldið í óvissu hjá fjölskyldunni, en heimför er ekki á döfinni.

„Það er ekki til umræðu. Við erum komin hér út og stelpurnar okkar eru byrjaðar á leikskóla. Nú ætla ég að leita að vinnu og skrá mig í fjarnám eftir áramót. Svo sjáum við til hvort rætist ekki úr málunum, en þetta blessast örugglega allt á endanum.“

Í svari frá íslenska menntamálaráðuneytinu segir að mál námsmannanna ættu að skýrast brátt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×