Matur

Helgarmaturinn - Alvöru quesadillas

Halla Heimisdóttir, íþrótta- og lýðheilsu-fræðingur.
Halla Heimisdóttir, íþrótta- og lýðheilsu-fræðingur.

Halla Heimisdóttir, íþrótta- og lýðheilsu-fræðingur, byrjar helgina stundum á þessum bragðgóða rétti.

Alvöru quesadillas

8 tortillakökur, grófar

2 kjúklingabringur, steiktar eða grillaðar

2 rauðlaukar

3 hvítlauksgeirar

3 paprikur

1 stór kúrbítur

Ólífuolía til að steikja upp úr

1 dl sýrður rjómi

2 stk. tómatar

Jalapeño ef vill

Ostur ef vill

Skerið rauðlaukinn í sneiðar og hvítlaukinn smátt og steikið upp úr ólífuolíu á pönnu. Skellið síðan niðurskorinni papriku, sveppum og kúrbít á pönnuna og steikið í um 4 mín. Kryddið með sjávarsalti og pipar.



Gvakamole – geggjað

3 msk. sítrónusafi

1 lítill skalottlaukur

1 niðurskorinn hvítlaukur

3 avókadó, steinhreinsuð og afhýdd

¼ búnt ferskt kóríander



Fyrstu fjórum innihaldsefnunum skellt í blandara og blandað létt saman til að fá laukinn fínskorinn, afganginum síðan bætt við og blandað vel saman.

Hitið tortillu á pönnu og smyrjið með sýrðum rjóma og setjið steikta grænmetið ofan á ásamt kjúklingnum. Skerið tómata í sneiðar og bætið þeim ásamt jalapeño ofan á grænmetið ásamt gvakamole „to die for" og osti. Lokið með annarri tortillu og snúið á hina hliðina til að bræða ostinn og brúna.

Borið fram með gvakamole „to die for", sýrðum rjóma og klettasalati.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×