Matur

Bjóða ó­keypis vín gegn því að símar séu læstir inni í skáp

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Veitingastaðurinn er staðsettur í borginni Verona á Ítalíu.
Veitingastaðurinn er staðsettur í borginni Verona á Ítalíu. EPA

Á veitingastað í borginni Verona á Ítalíu býðst gestum ókeypis vínflaska með matnum gegn því að þeir læsi farsíma sína í skáp við komu á veitingastaðinn og afhendi þjóni lyklana. 

Angelo Lella, eigandi veitingastaðarins Al Condominio, segir markmiðið með tilrauninni að hvetja gesti til þess að spjalla saman í stað þess að horfa niður í símann í tíma og ótíma.

„Við vildum opna veitingastað sem er svolítið öðruvísi en aðrir staðir,“ sagði Lella í samtali við blaðamann The Guardian, sem fjallaði um málið.

„Þannig að við völdum þetta snið. Gestum stendur nú til boða að hafna tækninni meðan þau njóta stundarinnar saman. Sífellt fleiri vandamál stafa af tækninni. 

Það er engin þörf á að kíkja í símann á fimm sekúndna fresti, en fyrir sumum eru símarnir eins og fíkniefni. Svona fá gestir tækifæri til þess að leggja símann til hliðar og gæða sér á góðu víni,“ segir Lella.

Gestum á veitingastaðnum Al Condominio býðst að koma símum sínum fyrir í læstum kassa við komu á veitingastaðinn. Lyklinum að kassanum afhenda þeir síðan þjóni sem færir þeim vínflösku í boði hússins. 

Lella segir tilraunina hafa fengið góð viðbrögð og að um níutíu prósent gesta hafi fallist á að læsa símana sína inni í skáp gegn ókeypis víni. Það sé fallegt að sjá fólk njóta félagskaps hvors annars í stað þess að hanga í símanum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×