Íslenski boltinn

Víðir verður áfram hjá ÍBV

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Heimasíða ÍBV
Víðir Þorvarðarson hefur gert nýjan tveggja ára samning við ÍBV og mun því spila áfram með liðinu í Pepsi-deildinni.

Víðir er uppalinn hjá ÍBV en lék með Stjörnunni í tvö ár þar til hann sneri aftur til Eyja fyrir tveimur árum síðan. Heimasíða ÍBV greinir frá þessu.

Hann á að baki 68 leiki og ellefu mörk í deild og bikar með báðum liðum auk þess sem hann lék stuttlega með KFS í 3. deildinni árið 2009. Hann skoraði sjö mörk í 24 leikjum með ÍBV í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×