Íslenski boltinn

Fylkismenn unnu Víkinga og riðilinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ásgeir Örn Arnþórsson.
Ásgeir Örn Arnþórsson. Vísir/Vilhelm
Fylkir vann 4-1 sigur á Víkingum í kvöld í síðasta leik liðanna í B-riðli Reykjavíkurmótsins í fótbolta en Árbæingar tryggðu sér sigur í riðlinum með þessum sigri í Egilshöllinni.

Viktor Jónsson kom Víkingum reyndar í 1-0 í leiknum og þannig var staðan í hálfleik en þau úrslit hefðu skilaði Víkingum efsta sætinu.

Fylkismenn svöruðu hinsvegar með fjórum mörkum. Ásgeir Örn Arnþórsson skoraði tvö þeirra, Finnur Ólafsson eitt úr víti og Elís Rafn Björnsson síðan það fjórða og síðasta.

Fylkismenn fengu 10 stig af 12 mögulegum út úr leikjum fjórum og skoruðu 12 mörk gegn 4 í þeim. Fylkismenn eru komnir í undanúrslitin en Víkingar þurfa að bíða eftir úrslitum úr leik Vals og Þróttar sem er nú í gangi í Egilshöllinni.

Upplýsingar um markaskorar eru fengnar af vefsíðunni fótbolti.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×