Íslenski boltinn

Líkur á að Ögmundur spili áfram með Fram

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ögmundur Kristinsson, markvörður Fram.
Ögmundur Kristinsson, markvörður Fram. Mynd/Stefán
Ögmundur Kristinsson á ekki von á því að hann gangi til liðs við skoska liðið Motherwell áður en lokað verður fyrir félagaskipti í Bretlandi annað kvöld.

Ögmundur æfði með skoska liðinu í síðustu viku og sagði í samtali við Fótbolta.net að það hefði gengið vel.

„Ég fer ekki núna nema eitthvað stórkostleg breytist. En maður veit aldrei í þessu,“ sagði Ögmundur og bætti við að forráðamenn Motherwell hefðu fremur við að skoða hann með það fyrir augum að fá hann til liðs við félagið næsta sumar.

„Ég fékk mjög góð viðbrögð hjá stjóranum og markannsþjálfaranum. Þeir voru áhugasamir,“ bætti Ögmundur við.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×