Íslenski boltinn

Wicks á leiðinni til Svíþjóðar

Wicks er klár fyrir Svíþjóð en hann birti þessa mynd á Instagram í kvöld.
Wicks er klár fyrir Svíþjóð en hann birti þessa mynd á Instagram í kvöld.
Bandaríski markvörðurinn Joshua Wicks, sem varði mark Þórs frá Akureyri síðasta sumar, verður ekki áfram á Íslandi því hann er búinn að finna sér nýtt félag.

Wicks tilkynnti á Twitter-síðu sinni í kvöld að hann væri búinn að semja við sænska félagið AFC United.

Liðið er staðsett í Solna og er í þriðju deildinni í Svíþjóð.

Miðað við myndinni sem fylgir færslunni er Bandaríkjamaðurinn hressi hæstánægður með nýja starfið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×