Íslenski boltinn

FH-ingar steinlágu gegn Örebro

Davíð Þór Viðarsson kom mikið við sögu í dag.
Davíð Þór Viðarsson kom mikið við sögu í dag.
FH fékk skell, 4-1, gegn Örebro í Atlantic-bikarnum sem fram fer á Algarve í Portúgal. Tapið var reyndar of stórt miðað við gang mála í leiknum.

FH lenti 2-0 undir eftir um hálftíma leik. Seinna markið kom úr víti eftir klaufalegt brot hjá Davíð Þór Viðarssyni sem lék sem miðvörður í dag.

Davíð bætti upp fyrir brotið undir lok hálfleiksins er hann skoraði laglegt mark með skalla eftir hornspyrnu.

FH var talsvert betri aðilinn framan af síðari hálfleik. Fékk færin til þess að jafna en nýtti þau ekki.

Hafnfirðingum var svo refsað í tvígang undir lokin. Síðasta markið kom úr víti sem virtist vera nokkuð harður dómur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×