Íslenski boltinn

Breiðablik og FH í beinni á Eurosport 2

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Anton
Eurosport 2 mun sýna frá leikjum FH og Breiðabliks í æfingamóti í Portúgal á næstu dögum.

Breiðablik mætir Mattersberg frá Austurríki í kvöld og verður leikurinn sýndur beint klukkan 19.30. Viðureign FH og Örebro frá Svíþjóð verður svo sýndur klukkan 15.45 á morgun.

Liðin eru stödd í Portúgal og taka þar þátt í Atlantic Cup, átta liða æfingamóti. Meðal annarra þátttökuliða eru dönsku liðin FCK og Midtjylland.

Eurosport-rásirnar báðar má finna á Fjölvarpi Stöðvar 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×