Íslenski boltinn

Fram og KR í undanúrslit Reykjavíkurmótsins

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gary Martin skoraði fyrir KR.
Gary Martin skoraði fyrir KR. Vísir/Anton
Fram og KR tryggðu sér í dag tvö efstu sætin í A-riðli Reykjavíkurmótsins í fótbolta og þar með sæti í undanúrslitum keppninnar.

Fram vann 4-1 sigur á Fjölni en KR vann 3-1 sigur á Leikni. Fram vinnur riðilinn á markatölu en bæði liðin enduðu með 9 stig af tólf mögulegum.

Fram mætir Val í undanúrslitunum á fimmtudaginn en í hinum leiknum mætast KR og Fylkir.

Kristófer Eggertsson Gary Martin og Þorsteinn Már Ragnarsson skoruðu mörk KR á móti Leikni en Brynjar Hlöðversson minnkaði muninn í 1-2 fyrir Breiðholtsliðið.

Ásgeir Marteinsson, Einar Bjarni Ómarsson, Einar Már Þórisson og Arnþór Ari Atlason skoruðu mörk Fram á móti Fjölni en Ragnar Leósson jafnaði leikinn fyrir Fjölni.

Upplýsingar um markaskorara í leikjunum er fengnar af vefsíðunni fótbolti.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×