Íslenski boltinn

Jó-þema hjá Þórsurum í Kjarnafæðimótinu í gær

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jóhann Helgi Hannesson.
Jóhann Helgi Hannesson. Vísir/Daníel
Þórsarar unnu 3-0 sigur á Völsungum í Kjarnafæðimótinu í fótbolta í gærkvöldi en mörk liðsins skoruðu þeir Jóhann Helgi Hannesson, Jóhann Þórhallsson og Jónas Björgvin Sigurbergsson.

Þórsarar hafa unnið alla þrjá leiki sína í b-riðli Norðurlandsmótsins og markatala liðsins er 14-0.

Jóhann Helgi Hannesson skoraði fyrsta markið á 7. mínútu og Jóhann Þórhallsson bætti við öðru með skoti fyrir utan teig á 14. mínútu. Jónas Björgvin Sigurbergsson skoraði síðan þriðja mark Þórsara þegar hann fylgdi eftir skoti á 75. mínútu.

Atli Jens Albertsson, varnarmaður Þórsara, fékk sitt annað gula spjald á 87. mínútu og Þórsarar enduðu því leikinn manni færri.

Jónas Björgvin Sigurbergsson hefur skorað fjögur mörk fyrir Þórsliðið í þremur leikjum í Kjarnafæðimótinu en þeir Jóhann Helgi Hannesson, Jóhann Þórhallsson og Orri Freyr Hjaltalín hafa allir gert tvö mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×