Innlent

Starfsemi glæðist í skóla Svarfdælinga

Kristján Már Unnarsson skrifar
Nærri áratug eftir að Svarfdælingar dreifðu skít um götur Dalvíkur til að mótmæla lokun Húsabakkaskóla virðast sárin að mestu gróin. Í skólahúsin er komin margvísleg önnur starfsemi, eins og ferðaþjónusta, náttúrusafn, handverkssetur og jógamiðstöð. Um þetta var fjallað í þættinum „Um land allt" á Stöð 2 í kvöld, sem og blómstrandi mannlíf í Svarfaðardal.

Skólabyggingarnar á Húsabakka. Sveitaþorp er myndast á torfunni.Stöð 2/Baldur Hrafnkell Jónsson.
Húsabakki er um sex kílómetra fyrir innan Dalvík en lokun skólans árið 2005 reyndist íbúum sveitarinnar afar sár, þeir kröfðust sambandsslita við Dalvík og vildu endurvekja hinn gamla Svarfaðardalshrepp. Sólveig Lilja Sigurðardóttir kennari rifjar upp að meira að segja hafi skítadreifarar verið notaðir mótmælaskyni, - en allt kom fyrir ekki, - og svo fór að skólanum var lokað. 

Smám saman hefur ný starfssemi verið að færast í skólahúsin, eins og ferðaþjónusta, handverkssetur, jógasetur og - með tengingu við friðland Svarfdæla í dalbotninum - er þar nú komið náttúrusetur.

Fyndin fuglasýning er meðal annars komin í gamla skólann.Stöð 2/Baldur Hrafnkell Jónsson.
„Þetta er smámsaman að byggjast upp og gengur bara ágætlega, að okkar mati. Hér er alltaf að fjölga gestum og þetta vinnur allt afskaplega vel saman,“ segir Hjörleifur Hjartarson, verkefnisstjóri Náttúruseturs á Húsabakka. 

Bæjarstjóri Dalvíkurbyggðar, Bjarni Th. Bjarnason, segir sveitina og bæinn styrkja hvort annað. „Þetta samfélag byggist á bæði þéttbýli og dreifbýli, - og sveitin og svo aftur sjávarsíðan, - hvort annað styrkir hitt. Fólk sem býr á Dalvík hefur auðvitað miklar taugar til sveitarinnar. Þetta er oft fólk sem á ættir að rekja úr sveitinni. Þannig að þetta er eitt stórt hjarta sem slær í takt,“ segir bæjarstjórinn.

Úr Svarfaðardal. Þar er friðland.Stöð 2/Baldur Hrafnkell Jónsson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×