Innlent

Telja ráðherra skyldugan til að heimila tollfrjálsan innflutning eggja vegna eggjaskorts fyrir jólin

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Skora á ráðherra að heimila tollfrjálsan innflutning.
Skora á ráðherra að heimila tollfrjálsan innflutning. Vísir

Félag atvinnurekenda skorar á stjórnvöld að gefa þegar í stað út opinn, tollfrjálsan innflutningskvóta á ferskum eggjum til að bregðast við fyrirsjáanlegum eggjaskorti fyrir jólin. Félagið telur að ráðherra sé skyldugur samkvæmt lögum til þess að gera slíkt.



Allar helstu matvöruverslanir hafa hætt sölu á eggjum frá eggjaframleiðandum Brúneggja eftir að í ljós kom að aðbúnaður hænsna í eigu fyrirtækisins hafi verið mjög slæmur.

Félag atvinnurekenda segir að vegna þess sé fyrirsjáanlegt að framboð á eggjum í verslunum dragist saman um allt að 20 prósent. Jólavertíðin er framundan og gera má ráð fyrir því að mikill bakstur sé framundan á heimilum landsins og því talsvert meiri þörf á eggjum en vanalega.



Bendir félagið á að í búvörulögum sé sérstakt ákvæði sem tryggja eigi að íslenskir neytendur búi ekki við matarskort. Samkvæmt þeim sé skylda lögð á landbúnaðarráðherra að úthluta tollkvótum ef „ framboð á viðkomandi vöru er ekki nægjanlegt á innanlandsmarkaði eða sýnt þykir að það verði ekki nægjanlegt á næstu þremur mánuðum.“



Þá telur félagið að innflutningur á ferskum eggjum sé óraunhæfur vegna þess hversu háir tollar séu í gildi. Á innflutt egg er lagður 30 prósent verðtollur, auk 208-390 króna magntolls á hvert kíló. Innkaupsverð vörunnar myndi því tvöfaldast og yrði hún ekki samkeppnisfær.



Því sé landbúnaðarráðherra í raun skyldugur til þess að opna fyrir innflutninginn í ljósi þess að skortur sé fyrirsjáanlegur, að mati félagsins.


Tengdar fréttir

Lífræn ræktun gæti skaðast

Notkun fyrirtækja á innihaldslausri vottun um vistvæna framleiðslu gæti spillt fyrir þeim sem hafa allt sitt á hreinu og lúta ströngu regluverki lífrænnar framleiðslu. Lífræn vara lýtur ströngu eftirliti byggðu á ESB-reglum.

Spældir enda búnir að missa alla kúnna

Kristinn Gylfi Jónsson, einn af eigendum Brúneggja, segir afar erfitt að takast á við þær aðstæður sem sköpuðust eftir að Kastljós fjallaði um málefni fyrirtækisins á mánudagskvöld.

Hafnar alfarið ábyrgð á brúneggjamáli

Kristinn Hugason, fyrrverandi starfsmaður atvinnuvegaráðuneytisins, hafnar því með öllu í viðtali við Fréttablaðið að hann beri á nokkurn hátt ábyrgð á því að málefni fyrirtækisins Brúnegg, sem Kastljós fjallaði um á mánudagskvöld, dagaði uppi í ráðuneytinu án aðgerða.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×