Viðskipti innlent

Full ástæða til að gefa samþjöppun á leigumarkaði „sérstakan gaum“

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Fasteignaverði hefur hækkað mikið í Reykjavík að undanförnu.
Fasteignaverði hefur hækkað mikið í Reykjavík að undanförnu. VÍSIR/VILHELM
Allt að fjörutíu prósent af íbúðarhúsnæði sem er í leigu á höfuborgarsvæðinu og á Suðurnesjum er í eigu fasteignafélaga. Samkeppniseftirlitið telur að „full ástæða þess að gefa þessari þróun sérstakan gaum.“

Þetta kemur fram í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins þar sem fjallað er um kaup Almenna leigufélagsins ehf. á BK eignum ehf. Rekstaraðili hins sameinaða félags er Gamma en félagið er stærsta fyrirtæki sinnar tegundar á höfuðborgarsvæðinu með rösklega þúsund íbúðir í eignasafni sínu.

Niðurstaða Samkeppniseftirlitsins er sú að ekki sé tilefni til íhlutunar í samrumann á grundvelli samkeppnislaga en eftirlitið telur þó rétt að vekja athygli á auknu vægi sérhæfðra leigufélaga á markaði fyrir útleigu á íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum.

Sjá einnig: Bæjarstjóri segir óeðlilegt að lífeyrissjóðir fjármagni fasteignafélög

Í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins segir að Suðurnesjum eiga fasteignafélög á milli 70-80 prósent íbúðarhúsnæðis í almennri leigu, á móti 20-30 prósent sem er í eigu einstaklinga og minni aðila.

Fasteignaverð hækkaði hvergi meiri en á Íslandi á síðasta ári og telja ýmsir að fasteignafélögin eigi sinn þátt í þeirri þróun. Ármann Kr. Jakobsson, bæjarstjóri Kópavogs, sagði til að mynda í Víglínunni á Stöð 2 fyrir skömmu að fasteignafélag væru að sprengja upp íbúðaverð.

Líkt og áður segir telur Samkeppniseftirlitið fulla ástæðu til þess að gefa þessari þróun sérstakan gaum en þótt að sé að lítið framboð á leiguhúsnæði og stóraukin eftirspurn ráði miklu um hækkandi fasteigna- og leiguverð nú um stundir, getur aukin samþjöppun á markaðnum leitt til minnkandi samkeppni til lengri tíma, leigutökum til tjóns.

Í ákvörðuninni er tekið fram að frekari samþjöppun í þessari atvinnustarfsemi muni að líkindum kalla á ítarlegar rannsóknir af hálfu Samkeppniseftirlitsins. Full ástæða sé hins vegar til þess fyrir önnur stjórnvöld sem að þessu koma að meta stöðuna og huga að stjórntækjum á sínum vettvangi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×