Viðskipti innlent

Fagnar komu fiskeldis í Ólafsfjörð

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Frá Ólafsfirði. Bæjarstjórinn er ánægður með fiskeldið.
Frá Ólafsfirði. Bæjarstjórinn er ánægður með fiskeldið. vísir/sveinn
Stefnt er að því að hefja 10.000 tonna fiskeldi í Ólafsfirði. Fulltrúar Arnarlax og sveitarstjórnarinnar munu undirrita viljayfirlýsingu þess efnis.

„Lykillinn í þessu er að fiskeldi skapar störf sem eru mjög nauðsynleg í brothættum byggðum eins og Fjallabyggð og Dalvík,“ segir Gunnar Birgisson, bæjarstjóri í Fjallabyggð.

Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri í Fjallabyggð. VÍSIR/VALLI
„Þetta hefur verið lykilmál í byggðum á suðurhluta Vestfjarða þar sem unga fólkið hefur getað komið aftur til baka með sína menntun og stundað störf í heimabyggð. Þetta er að bjarga samfélögunum. Það sama mun gerast hér.“

Áætlað er að á bilinu sjötíu til áttatíu störf muni skapast við þetta en ekki liggur ljóst fyrir hvenær framleiðsla getur hafist. Framkvæmdin er líklega háð mati á umhverfisáhrifum. Hvort þetta komi til með að kalla á aukið húsnæði í sveitarfélaginu segir bæjarstjórinn að nóg sé til af lóðum og auðvelt að svara slíkum þörfum.

„Ég fagna allri atvinnuuppbyggingu í firðinum,“ segir Bjarni Th. Bjarnason, bæjarstjóri Dalvíkurbyggðar, en tekur fram að málið hafi ekki verið rætt í sveitarstjórninni. „Eflaust verða einhverjir á Dalvík sem koma til með að starfa þarna þegar þar að kemur.“ 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×