Innlent

Myndi leiða til hækkunar

Kristinn Ingi Jónsson skrifar
Samkeppniseftirlitið hafnaði undanþágubeiðni Markaðsráðs kindakjöt.
Samkeppniseftirlitið hafnaði undanþágubeiðni Markaðsráðs kindakjöt. vísir/stefán
Samkeppniseftirlitið telur að hugmyndir sláturleyfishafa um að standa saman að útflutningi kindakjöts séu til þess fallnar að raska samkeppni með afar alvarlegum hætti. Með slíku samstarfi yrðu sköpuð skilyrði til þess að verð til íslenskra neytenda hækki og valdi þeim þar með tjóni.

Markaðsráð kindakjöts sótti um undanþágubeiðni frá samkeppnislögum vegna umrædds samstarfs. Þeirri beiðni hafnaði Samkeppniseftirlitið, eins og Fréttablaðið greindi frá í gær.

Eftirlitið segir í bréfi til Markaðsráðsins að í hugmyndum ráðsins felist að sláturleyfishafar komi sér saman um að takmarka framboð af lambakjöti sem fer á markað hér á landi með því að skuldbinda sig til þess að flytja árlega út samtals 35 prósent af framleiddu lambakjöti. Slíkt samstillt átak um að draga úr framboði myndi fyrst og fremst leiða til hærra verðs á kjöti fyrir íslenska neytendur, að mati Samkeppniseftirlitsins.

Eftirlitið bendir auk þess á að undirbúningi málsins af hálfu Markaðsráðs hafi verið verulega ábótavant. Þannig hafi ráðið til dæmis ekki lagt neitt mat á hvaða áhrif aðgerðirnar hefðu á verð til neytenda.


Tengdar fréttir

Vonar að sala á kjöti til Kína hefjist í vetur

Von er á kínverskri sendinefnd í september sem kemur hingað til að kynna sér sláturhús. Horfur eru á að hægt verði að hefja útflutning á lambakjöti til Kína í framhaldinu. Erfitt er að selja kjöt erlendis sem ekki er merkt sem íslensk.

Samkeppniseftirlitið hafnaði beiðni Markaðsráðs kindakjöts

Markaðsráð kindakjöts hefur ekki sýnt fram á að skilyrði fyrir undanþágu frá samkeppnislögum séu uppfyllt vegna umsóknar ráðsins um leyfi til aukins samstarfs sláturleyfishafa við útflutning á kindakjöti. Þetta er mat Samkeppniseftirlitsins.

Segir offramleiðslu á kindakjöti rót vandans

Prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands vill stöðva gegndarlausa offramleiðslu á kindakjöti. Hann segir bændur verða að laga framleiðslu sína að markaðs­aðstæðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×