Viðskipti innlent

Kristján verður yfir fjármálasviði Alvotech

Atli Ísleifsson skrifar
Kristján Jakobsson.
Kristján Jakobsson. Alvotech
Kristján Jakobsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri á fjármálasviði líftæknifyrirtækisins Alvotech.

Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að Kristján muni leiða uppbyggingu á fjármálasviði Alvotech samstæðunnar og vinna náið með forstjóra og öðrum lykilstjórnendum fyrirtækisins.

„Kristján hefur síðastliðin 13 ár starfað hjá Actavis, m.a. sem framkvæmdastjóri fjármála þróunarsviðs í Sviss, og hefur því víðtæka reynslu af rekstri og stjórnun alþjóðlegra lyfjafyrirtækja. Kristján er viðskiptafræðingur af endurskoðunarsviði Háskóla Íslands frá árinu 2002.

Kevin Bain er fjármálastjóri Alvotech og hefur umfangsmikla reynslu af fjármálastjórnun alþjóðlegra lyfjafyrirtækja og hefur starfað hjá Alvogen síðan árið 2009 og var áður hjá Actavis um langt skeið,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×