Innlent

Bílvelta á Þrengslavegi

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Tveir sjúkrabílar voru sendir á slysstað í morgun.
Tveir sjúkrabílar voru sendir á slysstað í morgun. Vísir/vilhelm
Pallbíll valt á Þrengslavegi á áttunda tímanum í morgun. Bílstjórinn var einn í bílnum en hann er ekki talinn alvarlega slasaður, samkvæmt upplýsingum frá Brunavörnum Árnessýslu.

Pétur Pétursson hjá Brunavörnum Árnessýslu segir í samtali við Vísi að tilkynning hafi borist um veltuna skömmu fyrir klukkan átta. Tilkynnandi ók í burtu og var viðbragðsaðilum því ekki ljóst hversu alvarlegt slysið var fyrr en komið var á vettvang.

Ekki þurfti að beita klippum en maðurinn var kominn inn í sjúkrabíl um klukkan átta. Viðbragsaðilar frá Brunavörnum Árnessýslu á Þorlákshöfn, tveir sjúkrabílar frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands auk lögreglu voru sendir á slysstað.

Pétur segir í samtali við Vísi að slysið í dag sýni hversu mikilvægt það sé að fólk stoppi til að kanna aðstæður, keyri það fram á slys. Þannig geti viðbragðsaðilar metið hversu fjölmennt lið þurfi að senda á vettvang.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×