Innlent

Snjómokstursvél fór á hliðina við Miklubraut

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Frá vettvangi við Miklubraut á þriðja tímanum.
Frá vettvangi við Miklubraut á þriðja tímanum. Vísir/Ívar
Snjómokstursvél fór á hliðina við Miklubraut hjá Skaftahlíð á þriðja tímanum í dag. Ekki er talið að slys hafi orðið á fólki, að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu.

Ekki fengust upplýsingar um það hvernig óhappið bar að eða hversu margir áttu hlut að máli. Sjúkrabíll var sendur á vettvang og þá var lögregla einnig kölluð til.

Uppfært klukkan 14:58:

Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var enginn fluttur á slysadeild. Þá hafi allt farið eins vel og hægt var. Verið er að vinna að því að rétta snjómokstursvélina við og koma henni í burtu.

Fréttin hefur verið uppfærð.

Óhappið varð um klukkan 14:30 í dag.Vísir/EGill



Fleiri fréttir

Sjá meira


×