Innlent

Ók utan í vegrið á Hellisheiði

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Bíllinn var nokkuð illa farinn.
Bíllinn var nokkuð illa farinn. Vísir/Egill
Fólksbíl var ekið utan í vegrið á Hellisheiði um klukkan 13 í dag. Engin slys urðu á fólki, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi.

Lögreglubíll var sendur á vettvang frá Selfossi. Ekki er ljóst hvort ökumaðurinn var einn í bílnum eða hvort einhverjir farþegar voru með honum. Að sögn lögreglu var atvikið minniháttar en ljóst er að töluverðar skemmdir urðu þó á bílnum.

Búist er við vonskuveðri á nær öllu landinu síðdegis í dag, í kvöld og í nótt. Enn eru þó flestir vegir greiðfærir á Suðurlandi, samkvæmt upplýsingum á vef Vegagerðarinnar.

Lögreglubíll frá Selfossi var sendur á vettvang.Vísir/Egill



Fleiri fréttir

Sjá meira


×