Viðskipti innlent

Neytendasamtökin krefjast tafarlauss endurútreiknings smálána

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna.
Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna. Vísir/Þorbjörn Þórðarson
Neytendasamtökin segja að stjórnvöld verði að tryggja að nú þegar fari fram endurútreikningur á öllum smálánum af hálfu hlutlausra aðila sem allra fyrst. Þau hvetja bæði stjórnvöld og fyrirtæki til að bregðast skjótt við svo réttindi lántaka verði tryggð.

Fréttablaðið greindi frá því í morgun að forstjóri Kredia Group héti því að dagar smálána á allt að 3.000 prósenta vöxtum séu liðnir.

Í fréttatilkynningu frá Neytendasamtökunum er farið fram á að Almenn innheimta ehf. stöðvi innheimtu og láti umboðsmann skuldara fá öll nauðsynleg gögn og segja mjög hafa skort á upplýsingagjöf frá Almennri innheimtu efh. til lántakenda. Meira en helmingur þeirra sem leituðu til Umboðsmanns skuldara í fyrra höfðu tekið smálán.

„Fjölmargir hafa þegar gert upp ólögleg smálán og eiga því inni kröfu á bæði Kredia Group og Almenna innheimtu ehf. Bæði þessi fyrirtæki ættu að sjá sóma sinn í því að endurgreiða oftekna vexti og biðja viðskiptavini sína afsökunar á að hafa stundað ólöglega lána- og innheimtustarfsemi um árabil.“

Neytendasamtökin, sem hafa ítrekað gagnrýnt að Creditinfo hafi sett fólk á vanskilaskrá vegna vanskila á ólöglegum lánum, hvetja Creditinfo til að bregðast skjótt við og afskrá fólk sem hefur verið á vanskilaskrá vegna smálána.

„Lántakendur eiga ekki sjálfir að þurfa að senda andmæli til Creditinfo og Almennrar innheimtu ehf. þar sem fyrir liggur að vanskilaskráningin var ekki á rökum reist“.

Neytendasamtökin segja að borið hafi á því smálánafyrirtækið hafi skuldfært af kortum og bankareikningum lántakenda á grunni „mjög óljósrar skuldfærsluheimildar“.

Samtökin segjast líta það mjög alvarlegum augum að ólöglegar kröfur séu innheimtar með þessum hætti án þess að heimild sé til staðar.

„Bankar og kortafyrirtæki eru hvött til að aðstoða sína viðskiptavini og tryggja endurgreiðslu ólöglegra úttekta hið snarasta, enda telja Neytendasamtökin að fjármálafyrirtækin séu ábyrg gagnvart sínum viðskiptavinum.“


Tengdar fréttir

Ráðleggur neytendum að forðast eCommerce

Lánafyrirtækið eCommerce 2020, sem rekur smálánafyrirtækin Kredia, Hraðpeninga og fleiri, hefur lækkað vexti niður í þá hæstu leyfilegu samkvæmt lögum. Framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna hefur efasemdir.

Vilja breytt lög um smálán

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið birti í gær áform um lagabreytingu á lögum um neytendalán á samráðsvef stjórnvalda.

Þrjú skref sem lántakendur smálána geta stigið

Neytendasamtökin hafa tekið saman þrjú skref sem lántakendur smálána geta stigið til þess að vernda eigin hagsmuni gagnvart smálánafyrirtækjum. Það er mat Neytendasamtakanna að ekki megi innheimta kröfur sem bera ólöglega vexti.

Smálán heyra nú sögunni til

Forstjóri Kredia Group, sem á smálánafyrirtækin 1909, Múla og fleiri, segist bera virðingu fyrir íslenskum lögum. Aðeins verði lánað fyrir hæstu löglegu vexti. Innheimtu lána á hærri vöxtum hafi verið hætt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×