Makamál

Þriðjungur segist hafa verið „dömpað“ í gegnum skilaboð

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Getty

Nútíma stefnumótamenning hér á landi er oft mjög rafræn og hafa samfélagsmiðlar og stefnumótaforrit spilað sífellt stærra hlutverk í samskiptum fólks. Samskiptin eru oft á tíðum mest í gegnum síma í byrjun sambands og nokkuð hefur borið á því að fólk nýti sér þessa ákveðnu fjarlægð til að slíta samböndum í gegnum skilaboð.

Ef marka má niðurstöður Makamála úr könnuninni, Hefur þú „dömpað“ einhverjum í gegnum skilaboð?, hefur rúmlega þriðjungur lesenda Vísis upplifað það að vera „dömpað“ rafrænt.

Einnig er hægt að sjá að samkvæmt þessu segjast 20% lesenda hafa gripið til þess ráðs að slíta sambandi í gegnum skilaboð. 

Hægt er að sjá nákvæmari niðurstöður hér fyrir neðan: 

Hefur þú „dömpað“ einhverjum í gegnum skilaboð?

Já - 30%

Nei - 50%

Nei, en ég hef dömpað í gegnum skilaboð - 13%

Hef bæði dömpað og verið dömpað í gegnum skilaboð - 7%

*Tekið skal fram að niðurstöður byggjast eingöngu á svörum lesenda Vísis og því ekki hægt að alhæfa um niðurstöður. Kannanir Makamála eru ætlaðar til skemmtunar og til að vekja umræðu og athygli á ýmsum málefnum.


Tengdar fréttir

Fólk að stelast í bólið og þorir ekki á Húð og kyn

Aukin tíðni kynsjúkdóma hefur vakið athygli fyrstu mánuði ársins. Makamál slógu á þráðinn til Siggu Daggar, kynfræðings, og fengu að heyra hennar vangaveltur um mögulegar ástæður þessarar aukningar. 

Föðurland: Bundinn fyrir lífstíð besti díll í heimi

Söngvarinn Sverrir Bergmann og kona hans Kristín Eva, lögfræðingur, eignuðust sitt fyrsta barn í byrjun febrúar. Makamál náði tali af nýbakaða föðurnum og fengu að heyra aðeins um nýja hlutverkið og reynsluna sem tilvonandi faðir af meðgöngu og fæðingu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×