Makamál

„Sætasti gaur sem ég þekki“

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Salka Sól og Arnar Freyr eru meðal þekktustu tónlistarmanna landsins. 
Salka Sól og Arnar Freyr eru meðal þekktustu tónlistarmanna landsins.  Salka Sól

Tónlistaparið Salka Sól Eyfeld og Arnar Freyr Frostason kynntust um verslunarmannahelgi árið 2015 á Sjallanum á Akureyri þar sem þau voru bæði að koma fram. Síðan þá hafa þau trúlofað sig, gengið í hjónaband og eignast saman tvö börn, þau Unu Lóu og Frosta.

Salka Sól og Arnar giftu sig árið 2019 við fallega athöfn í hlöðu í Hvalfirði og var veislan haldin í fjósi á Þórisstöðum. Að sögn Sölku Sólar er Hvalfjörður rómantískandi staður á landinu og býr yfir ákveðnum töfrum.

Salka Sól

Salka Sól situr fyrir svörum í viðtalsliðnum Ást er.


Hvort ykkar tók fyrsta skrefið: Við kynntumst þar sem við vorum bæði að spila á Sjallanum um verslunarmannahelgi 2015. Ekki löngu síðar vorum við búin að adda hvort öðru á Snapchat (sem var þá viðreynslu forritið) og Arnar bauð mér svo á tónleika hjá sér. 

Í millitíðinni fór hann reyndar til Svíþjóðar og sendi mér snap þar sem hann söng:

Ég er hér, þú ert þar...við ættum að vera kærustupar.

Má ekki kalla það fyrsta skrefið?

Salka Sól

Fyrsti kossinn okkar: Hann var mjög kjút á Arnarhóli eftir partý á Prikinu.

Mér finnst rómantískt stefnumót vera: Saman í rólegheitum, spjalla saman, áhyggjulaust. Mér finnst það bara rómantískt þegar hann er með mér, sama hvar svo sem það er.

Uppáhalds rómantíska kvikmyndin mín er: Aladdin.

Uppáhalds break up ballaðan mín er: Jacque brel ne me quitte pas.

Lagið okkar: Við gengum út úr hlöðunni sem við giftum okkur í við lagið Come and get your love með Redbone. Okkur þykir mjög vænt um það lag.

Maturinn: Ég elska street food, líka þegar hann er gerður heima.

Fyrsta gjöfin sem ég gaf manninum mínum: Við vorum ekki búin að vera lengi saman fyrstu jólin okkar saman, það var 2015 árið sem Úlfur Úlfur gaf út Tvær Plánetur. Hún hafði ekki komið út á vinyl þannig ég lét búa til vinyl plötu og prentaði plötu coverið með. 

Mjög ánægð með þessa gjöf sko.
Salka Sól

Fyrsta gjöfin sem maðurinn minn gaf mér: Hann gaf mér hálsmen frá Orra Finn sem ég held ennþá mjög mikið uppá.

Maðurinn minn er: Sætasti gaur sem ég þekki, góður pabbi, fyndinn, hæfileikarríkur og nægjusamur fjölskyldumaður.

Rómantískasti staður á landinu: Við giftum okkur í Hvalfirði og mér hefur alltaf fundist einhverjir töfrar þar.

Salka Sól

Fyndnasta minningin af ykkur saman? Ó svo margar en ein sem mér dettur í hug er þegar við vorum í L.A og allt í einu komin í kaffi til ekkju Gene Kelly. Þar vorum við að leika okkur með sverðin úr the three musketeers og skoða bréf frá John F Kennedy.

Hlægjum stundum að því að þetta hafi bara gerst. Svo eru allar litlu minningarnar sem verða svo dýrmætar, hversdagslegir hlutir geta orðið að svo fallegum minningum.

Hver væri titillinn á ævisögu ykkar? Sextíu kíló af hafragraut.

Hvað gerið þið til að gera ykkur dagamun? Við förum saman á hótel eða eldum góðan mat heima en í hversdagsleikanum veljum við okkur stundum mynd eða þætti til að horfa á saman.

Hvernig myndir þú lýsa sambandinu ykkar? Við erum ótrúlega samstíga í svo mörgu og okkur þykir gaman saman í foreldrahlutverkinu og gaman saman bara tvö. 

Við erum með ólíka styrkleika í mörgu og náum þess vegna góðu jafnvægi saman.
Salka Sól

Hvar sérðu ykkur eftir tíu ár? Foreldrar með unglinga ennþá sjúk í hvort annað.

Ást er ...dásamlega falleg samvinna.


Ást er er viðtalsliður á Lífinu á Vísi þar sem við ræðum við ástfangin pör á öllum aldri.  Endilega sendið ábendingar um einstaklinga sem gætu átt heima í Ást er á svavam@stod2.is.


Tengdar fréttir

Myndaveisla: „Við erum ennþá nákvæmlega sömu gaurarnir“

Rappdúettinn Úlfur Úlfur, sem samanstendur af Arnari Frey Frostasyni og Helga Sæmundi Guðmundssyni, gaf út plötuna Hamfarapopp á dögunum sem er þeirra fyrsta breiðskífa frá árinu 2017. Fyrir hafa þeir gefið út þrjár plötur. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×