Heimsmarkmiðin

Stuðningur Alþjóðabankans vegna COVID nær til hundrað þjóðríkja

Heimsljós
Henitsoa Rafalia/World Bank

Alþjóðabankinn tilkynnti í dag að neyðaraðgerðir af hálfu bankans í baráttunni gegn COVID-19 hefðu náð til hundrað þjóðríkja, þar sem sjö af hverjum tíu íbúum jarðarinnar búa. Alþjóðabankinn, stærsta þróunarsamvinnustofnun í heiminum, hefur frá því í mars skipulega stutt við bakið á millitekju- og lágtekjuríkjum í viðleitni þeirra við að sporna við útbreiðslu veirunnar með því vernda fátæka og viðkvæma, styrkja heilbrigðiskerfi, og viðhalda atvinnu og efnahag. Aldrei áður í sögu bankans hefur á jafn skömmum tíma verið brugðist við óvæntri kreppu af meiri myndarskap.

Alþjóðabankinn brást þegar við í marsmánuði með fyrirheiti um 160 milljarða dala styrk. Jafnframt var veitt vilyrði um fjárhagslegan stuðning yfir fimmtán mánaða tímabil til að leggjast á árar með þróunarríkjum í aðgerðum þeirra á sviði heilbrigðis- og félagsmála, auk stuðnings við efnahagsleg áhrif kórónaveirunnar.

„Heimsfaraldurinn og áhrif hans á hagkerfi gæti leitt til fjölgunar í hópi sárafátækra um sextíu milljónir einstaklinga, og þannig þurrkað út framfarir síðustu ára í baráttunni gegn fátækt,“ segir David Malpass, forseti Alþjóðabankans. „Alþjóðabankinn hefur með hraði og á afgerandi hátt stutt neyðarviðbragðsaðgerðir í 100 löndum með fyrirkomulagi sem gerir öðrum framlagsríkjum kleift að bæta við fjármagni.“

Af fyrrnefndum eitt hundrað ríkjum eru 39 í Afríku sunnan Sahara. Um þriðjungi er ráðstafað til óstöðugra ríkja og ríkja þar sem átök geisa, eins og Afganistan, Tjad, Haítí og Níger. Ennfremur hefur bankinn gegnum samstarfsstofnanir stutt við bakið á einkafyrirtækjum í þróunarríkjum til að viðhalda störfum og lífsviðurværi fjölda fólks.

Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×