Rafíþróttir

Úrslitin ráðast í Stórmeistaramótinu

Halldór Már Kristmundsson skrifar
Skjáskot/RÍSÍ

Úrslitin ráðast í kvöld er FH og Fylkir mætast í keppni um stærsta bikar Íslands í Counter-Strike: Global Offensive. Upphitun fyrir leikinn byrjar klukkan 17:00 á opinni dagskrá á Stöð2 eSports.

Sérfræðingar Vodafone Deildarinnar Kristján Einar & Tómas Jóhannson leggja orðsporið undir er þeir mætast með lið sem þeir fengu sjálfir að velja. Hægt er að segja að heiðurinn sé í húfi ef marka má orð Kristjáns sem er nokkuð sigurviss.

Kristján Einar Kristjánsson

„Það er engin tilviljun að ég valdi fjóra nautabana til að mæta Nautunum hans Tomma, ég sá snemma í hvað stemmdi þegar hann var búinn að fá til sín marga af betri spilurum landsins. Það var því einfalt dæmi að fá til mín Þjálfara KR og bað hann um að taka með sér einn besta mann liðsins."

Liðin sem mætast

Nautin hans Tomma

Stefán Dagbjartsson (Dusty)

Jóhann Ólafur Kristjánsson (XY)

Aron Mímir Gylfason (Þór)

Alexander Egill Guðmundsson (KR)

Kúrekanir hans Kristjáns

Thomas Thomsen (KR)

Þórir Viðarsson (KR)

Antonio Salvador (Dusty)

Heiðar Flóvent Friðriksson (Keflavík)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×