Rafíþróttir

FSu og FG keppast um úrslitasæti gegn Tækni­skólanum

Arnar Gauti Bjarkason skrifar
Auglýsing Rafíþróttasambandsins fyrir kvöldið.
Auglýsing Rafíþróttasambandsins fyrir kvöldið.

Hörkuslagur mun eiga sér stað í FRÍS, Framhaldsskólaleikum Rafíþróttasambands Íslands í kvöld kl. 19:30 þegar Fjölbrautaskólinn í Garðabæ og Fjölbrautaskóli Suðurlands munu berjast um sæti í úrslitum gegn Tækniskólanum.

FG og FSu voru í 2. og 3. sæti hvort fyrir sig í undankeppni leikanna. Mikið er í húfi fyrir liðin en þau keppa um sæti í úrslitaviðureign gegn Tækniskólanum sem fer fram þann 17. apríl. Keppt verður, eins og venjulega, í Rocket League, Valorant og Counter-Strike.

Nálgast má leikina í beinni útsendingu á streymisrás Rafíþróttasambands Íslands, Stöð 2 Esports eða í spilaranum hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×