Rafíþróttir

Stórmeistaramótið í beinni: Tólf lið spila í kvöld

Snorri Már Vagnsson skrifar
Alexander "huNdzi" Egill og Guðbjartur "Guddi" Þorkell spila fyrir Ármann. Daníel "DOM" Örn og Bergur "Tight" Jóhannsson" eru leikmenn Sögu.
Alexander "huNdzi" Egill og Guðbjartur "Guddi" Þorkell spila fyrir Ármann. Daníel "DOM" Örn og Bergur "Tight" Jóhannsson" eru leikmenn Sögu.

Riðlakeppni Stórmeistaramótsins í Counter-Strike heldur áfram í kvöld. NOCCO Dusty og Þór eru búin að tryggja sig áfram í útsláttarkeppni en eftir standa  tólf lið sem öll mætast í kvöld.

Ármann, Aurora og Young Prodigies geta tryggt sig áfram með sigri í kvöld. Ármann mæta Sögu, Young Prodigies mæta FH og Vallea mætir Breiðabliki.

Liðin í hættu á að detta úr riðlakeppninni eru ÍBV, HiTech og Vallea, en öll hafa liðin aðeins sigrað eina viðureign. Good Company og Fylkir hafa lokið keppni eftir að tapa 3 leikjum í röð.

Allar viðureignir kvöldsins:

Ármann - Saga

Young Prodigies - FH

Aurora - Breiðablik

ÍBV - Úlfr

Hitech - Fjallakóngar

Vallea - ÍA

Viðureign Ármanns og Sögu verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Esports og á Twitch-rás Rafíþróttasambandsins kl. 19:30. Einnig má fylgjast með leiknum í spilaranum hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×