Samstarf

Hálendið þarf ekki að stoppa hjólhýsið

Fleygur

Dúnmjúkt fjöðrunarkerfi undir hjólhýsi frá stálsmiðjunni Fleyg hafa slegið í gegn í sumar en með kerfið undir hjólhýsinu má auðveldlega ferðast með hýsið yfir grófa hálendisvegi landsins. Sigurbjörn Jakob Þórmundsson stálsmiður og annar eigandi Fleygs segir hugmyndina hafa kviknað þegar hann fór djarflega í yfirlýsingar á góðri stund með félögunum og talið barst að fjöðrunarkerfi hjólhýsa.

„Það má segja að þetta sé afleiðing að einu Stroh- glasi,“ segir Sigurbjörn hress. „Félagi minn er að sýna okkur loftpúða undir hýsi og ég slengi því fram að ég geti nú gert þetta mikið betur. Ég varð auðvitað að standa við það. Ég fór því að rífa fjöðrunarkerfi sem fyrir voru undan hjólhýsum og set undir þau loftpúða og loftdælu. Ég fer með loftpúðana aftur fyrir hásingarna sem skilar skemmtilegri fjöðun.“

Sigurbjörn segir fjöðrunina oft svo stífa í hjólhýsum að innréttingum sé hætt við að losna og skemmast ef farið er út fyrir malbikið.

„Þetta gefur fólki aukna möguleika á að komast víðar á ferðalagi. Með loftpúðunum er fjöðrunin svo mjúk að það er hægt að komast yfir hálendið og yfir ófærur með hjólhýsið, innan skynsamlegra marka þó,“ segir Sigurbjörn. „Það má lyfta hýsunum yfir 20 sentimetra þegar fara þarf yfir ófæru.“

Það tekur Sigurbjörn um tíu daga að smíða fjöðrunina undir hjólhýsi en það þýðir ekki að leggja þurfi hjólhýsinu allan tímann.

„Það er óþarfi að stoppa útilegurnar, fólk pantar hjá mér og ég tek málin á hýsinu. Eftir það getur fólk farið í ferðalag meðan ég er að smíða. Svo kemur það til baka með hjólhýsið og ég er þrjá daga að setja nýju fjöðrunina undir. Þá er hægt að leggja aftur af stað og nú eru nánast allir vegir færir,“ segir Sigurbjörn.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×