Enski boltinn

Man Utd gæti reynt að fá Dembele í sínar raðir

Ísak Hallmundarson skrifar
FC Barcelona v PSV - UEFA Champions League Group B BARCELONA, SPAIN - SEPTEMBER 18: Ousmane Dembele of Barcelona celebrates after scoring his team's second goal during the Group B match of the UEFA Champions League between FC Barcelona and PSV at Camp Nou on September 18, 2018 in Barcelona, Spain. (Photo by Alex Caparros/Getty Images)

Manchester United gæti mögulega reynt að fá Ousmane Dembélé, leikmann Barcelona, í sínar raðir ef ekkert verður af félagsskiptum Jadon Sancho frá Dortmund til Manchester United.

Sancho sem hefur verið sterklega orðaður við Manchester United er sagður kosta yfir 100 milljónir punda og hefur Man Utd útbúið óskalista með ódýrari nöfnum sem inniheldur m.a. Dembélé.

Rauðu djöflarnir hafa nú ekki tapað leik í síðustu 17 leikjum sínum í öllum keppnum. Ole Gunnar Solskjær, knattspyrnustjóri Man Utd, vill styrkja leikmannahópinn enn frekar til að gera atlögu að sem flestum titlum sem eru í boði. 

Heimildir herma að hann vilji bæta að minnsta kosti einum miðjumanni og einum vængmanni við hópinn, þar sem Sancho hefur verið álitinn hinn fullkomni valkostur sem vængmaður. Dortmund er hinsvegar sagt ætla að reyna að halda leikmanninum. Því gæti Dembélé verið ódýrari valkostur sem vængmaður til að auka breidd Manchester United. 

Dembélé lék áður með Dortmund og Rennes og varð heimsmeistari með Frökkum árið 2018. Meiðsli hafa sett svip á feril hans hjá Barcelona síðustu ár.

Til að fjármagna leikmannakaup í sumar ætlar United að selja Phil Jones, Chris Smalling, Jesse Lingard, Marcos Rojo og Diogo Dalot, auk þess sem liðið mun hlusta á tilboð í Alexis Sanchez sem er á láni hjá Inter út þetta tímabil.

Fleiri fréttir

Sjá meira

×