Íslenski boltinn

Brasilískur fótboltamaður segist vera hrifinn af íslensku leiðinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Fred Saraiva í leik með Fram á móti Álftanesi í Mjólkurbikarnum.
Fred Saraiva í leik með Fram á móti Álftanesi í Mjólkurbikarnum. Vísir/HAG

Framarar hafa vakið athygli í íslenska fótboltanum í sumar og þá ekki síst Brasilíumaðurinn í Safamýrarliðinu sem er markahæsti leikmaður liðsins.

Framliðið er aðeins tveimur stigum frá toppsæti Lengjudeildarinnar og einu stigi frá sæti sem hefur þátttökurétt í Pepsi Max deildinni á næsta ári. Framarar eru einnig komnir áfram í átta liða úrslit Mjólkurbikarsins.

Markahæsti leikmaður Framliðsins er Braslíumaður sem ákvað fjórtán ára gamall að elta drauminn sinn að verða atvinnumaður í knattspyrnu. Hann byrjaði hjá Gremio en þar byrjuðu heimsfrægir leikmenn eins og Ronaldinho og Emerson ferill sinn.

Frederico Bello Saraiva er 23 ára gamall og var því ekki gamall þegar hann kom til Framara fyrir þremur árum síðan. Hann er nú markahæsti leikmaður Fram í deild og bikar með 8 mörk í 11 leikjum í sumar.

Í viðtali við Morgunblaðið sagði Fred, eins og hann er kallaður, frá því að það fór ekki vel í föður hans þegar hann ákvað að fara til Íslands. „Ég elska fjöllin og íslensku náttúruna, mig langaði til að koma og þurfti að rífast við föður minn til að gera það! Ég sé ekki eftir því að hafa komið, ég elska að vera hérna,“ sagði Fred Saraiva í viðtali við Kristófer Kristjánsson á Morgunblaðinu.

Í viðtalinu talar Fred Saraiva meðal annars um viðbrigðin að fara úr hitanum í suður Brasilíu í kuldann og rokið á Íslandi. Hann lýsir því meðal annars að hafa aldrei kynnst öðru eins og rokinu í leik í Grindavík.

Eftir erfit tvö ár með Fram hefur gengið verið allt annað og betra í sumar. Þannig ætlar Safamýrarliðið sér að endurheimta langþráð sæti í efstu deild.

„Ég held að við getum spilað í úrvalsdeildinni. Við mætum þessum liðum á undirbúningstímabilinu og þetta eru erfiðir leikir, auðvitað, en við stöndum í þessum liðum. Ég vil vera áfram í Fram, mér líður vel þar og ég vil vera áfram á Íslandi. Ég gæti verið hérna það sem eftir er ævinnar,“ sagði Fred í viðtalinu og það virðist líka vera sem svo að íslenski fótboltinn henti honum vel.

„Þetta er öðruvísi; meiri harka, meiri hraði. Í Brasilíu snýst allt um að stjórna leiknum og senda til hliðar. Ég er hrifinn af íslensku leiðinni. Hér þarftu að vera tilbúinn að berjast og hlaupa í 90 mínútur,“ sagði Fred en það má lesa allt viðtalið við hann með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×