Lífið

Margir feður teldu það rugl að hætta í skóla til að láta berja sig í búri

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Halli og Gunni Nelson voru gestir hjá Sölva Tryggvasyni.
Halli og Gunni Nelson voru gestir hjá Sölva Tryggvasyni. Skjáskot

Feðgarnir Gunni og Halli Nelson eru nýjustu gestirnir í podcasti Sölva Tryggvasonar. Þar fara þeir feðgar yfir ferilinn hjá Gunna, samskiptin við Conor McGregor og margt fleira. Haraldur faðir Gunna segir að strákurinn hafi notað tækifærið og hætt í Menntaskólanum við Sund þegar hann var í vinnuferð erlendis.

„Hann var alltaf fínn námsmaður og svona, en hann notaði tækifærið og hætti í menntaskóla á meðan ég var úti og tilkynnti mér það þegar ég kom heim, það var haldinn fjölskyldufundur í kjölfarið,” segir Halli.

Hann fann strax að stráknum var alvara með þessu og ástríðan fyrir íþróttinni væri mjög mikil og því hafi ekkert annað komið til greina en að styðja við bakið á honum. Gunni segir að það sé alls ekki sjálfgefið að foreldrar sjái hlutina með sömu augum og pabbi hans og mamma.

„Ég hugsa að það væru margir feður sem teldu að þetta væri tómt rugl að hætta í skóla til þess að fara að láta berja sig inni í einhverju búri.”

Taugahrúga fyrir hvern bardaga

Gunni vill meina að rektor Menntaskólans við Sund eigi í raun stóran hluta í þessari ákvörðun, þar sem hann fékk hann til að hugsa sinn gang.

„Hann boðaði mig á fund af því ég var búinn að mæta svo illa, af því ég var bara alltaf á æfingum og eitthvað svona. Mér gekk svo sem ágætlega og náði prófum þótt ég væri ekkert að sinna þessu. Á fundinum segir hann: „Þú þarft að fara að hugsa þinn gang vinur minn og ákveða hvað þú vilt gera“ og ég man að ég hugsaði að þetta væri bara hárrétt hjá honum og ég sagði honum að ég væri hættur.“

Halli segist yfirleitt vera taugahrúga rétt áður en Gunni fer inn í búrið fyrir bardaga, en það lagist svo um leið og bardaginn byrjar.

„Ég er náttúrulega alltaf á barmi taugaáfalls þarna á hliðarlínunni. Ég er miklu stressaðri en hann. Auðvitað er þetta barnið mitt og ég viðurkenni það fúslega að ég er mjög taugastrekktur fyrir bardaga. En svo er það þannig þegar bardaginn byrjar að þá er maður svo mikið inni í búrinu með honum að það dregur úr stressinu.“

Í viðtalinu fer Sölvi yfir það með feðgunum hvernig öll þessi vegferð í UFC hefur verið, hæðirnar, lægðirnar, sambandið við Conor McGregor og margt fleira.

Þáttinn í heild má sjá hér að neðan:


Tengdar fréttir

Skíthræddir við Benna Ólsara

Grínistarnir Hjálmar Örn og Helgi Jean eru nýjustu gestir Sölva Tryggvasonar í podcasti Sölva. Þeir félagarnir hafa undanfarið ár haldið úti einu vinsælasta hlaðvarpi landsins, HÆHÆ.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×