Lífið

Sophia Bush kemur út úr skápnum

Samúel Karl Ólason skrifar
Sophia Bush er 41 árs gömul og segir að henni finnist hún loks geta andað.
Sophia Bush er 41 árs gömul og segir að henni finnist hún loks geta andað. Getty/GENNA MARTIN

Sophia Bush hefur komið út úr skápnum og staðfest að hún sé í sambandi með Ashlyn Harris, fyrrverandi landsliðskonu í landsliði Bandaríkjanna í fótbolta. Bush segist loksins geta andað og segist finna fyrir miklum létti.

Bush, sem er leikkona og hvað þekktust fyrir leik sinn í þáttunum One Tree Hill, var í viðtali við Glamour í Bandaríkjunum þar sem hún segist pirruð yfir því að þurfa að koma út úr skápnum árið 2024 en ítrekaði að samfélag hinsegin fólks hefði líklega ekki orðið fyrir eins miklum árásum um árabil og það stæði frammi fyrir nú.

Hundruð frumvarpa sem beindust gegn samfélaginu hefðu verið lögð fyrir fjölmörg ríkisþing Bandaríkjanna í fyrra og segist hún þess vegna hafa ákveðið að stíga fram.

Hún skildi við eiginmann sinn í fyrra, eftir að þau höfðu gift sig snemma árs 2022. Undir lok síðasta árs sögðu fjölmiðlar vestanhafs frá því að Bush væri að hitta Harris. Þær mættu svo saman í Óskarsverðlaunasamkvæmi í síðasta mánuði, samkvæmt frétt NBC News.

Í viðtalinu, sem ber fyrirsögnina „Mér finnst ég loks geta andað“ segir Bush frá því að eftir að fregnirnar af sambandi hennar og Harris birtust fyrst hafi vinkona móður hennar hringt í hana og spurt hvort þetta gæti verið rétt. Dóttir hennar væri ekki samkynhneigð.

Móðir hennar svaraði um hæl: „Elskan mín. Ég held hún sé frekar samkynhneigð og hún er glöð.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×