Skoðun

Föngun og förgun kol­díoxíðs: tíma­mót í bar­áttunni við lofts­lags­breytingar

Berglind Rán Ólafsdóttir og Edda Sif Aradóttir skrifa

Baráttan gegn hlýnun Jarðar og loftlagsbreytingum er eitt af brýnustu úrlausnarefnum samtímans. Viðfangsefnin eru mörg, frá verndun skóga og votlendis yfir í orkuskipti og að draga verulega úr útblæstri skaðlegra lofttegunda. Hugvit, tæknilausnir og nýjar grænar atvinnugreinar eru forsenda þess að loftslagsmarkmið heimsins náist. Með nýju samstarfi Carbfix, Orku náttúrunnar og svissneska fyrirtækisins Climeworks hefur í fyrsta sinn verið þróuð tæknilausn sem fangar koldíoxíð beint úr andrúmslofti sem fargað er varanlega með umbreytingu í stein.

Carbfix fargar...

Rætur hins íslenska Carbfix ná aftur til 2007 þegar Orkuveita Reykjavíkur hóf, í samvinnu við Háskóla Íslands og alþjóðlegt teymi vísindafólks, að þróa Carbfix tæknina sem fangar og fargar koldíoxíð úr útblæstri. Koldíoxíðinu er blandað saman við vatn og verður þá til sódavatn sem er dælt niður í berglög þar sem það breytist í stein á innan við tveimur árum. Ferlið er bæði náttúrulegt og umhverfisvænt, og geta íslensk berglög fræðilega séð bundið milljarða tonna af koldíoxíði. Tækninni hefur verið beitt með góðum árangri frá árinu 2014 til að minnka kolefnisspor Hellisheiðarvirkjunar sem Orka náttúrunnar rekur.

...og Climeworks fangar 

Til að markmið Parísarsamkomulagsins náist er samt ekki nóg að minnka útblástur. Það þarf einnig að endurheimta hluta þess CO2 sem þegar hefur verið sleppt út í lofthjúpinn. Skógrækt er mikilvæg leið til að binda koldíoxíð úr andrúmslofti en staðreyndin er sú að hún nægir ekki ein og sér. Nýjar tæknilausnir, líkt og loftsugutækni sem svissneska fyrirtækið Climeworks hefur þróað, eru nauðsynlegar til að draga úr styrk koldíoxíðs í andrúmslofti.

Þrátt fyrir miklar fjárfestingar alþjóðlegra stórfyrirtækja í loftsugutækni er Hellisheiði eini staðurinn í heiminum þar sem CO2 úr andrúmlofti er bæði fangað og fargað varanlega.

Nýverið tilkynnti Climeworks, í samstarfi við Orku náttúrunnar og Carbfix, um áform sín um stóraukin umsvif á Íslandi. Fyrirtækið hefur hafið uppsetningu á loftsugustöð í Jarðhitagarði Orku náttúrunnar sem mun hreinsa 4000 tonn af koldíoxíði úr andrúmslofti árlega sem síðan verður fargað varanlega með Carbfix aðferðinni. Þrátt fyrir að 4000 tonn séu aðeins brot af þeim milljónum tonna sem þarf að hreinsa úr andrúmsloftinu á komandi áratugum er um brautryðjendastarf að ræða sem hefur alla burði til að vaxa hratt að umfangi.

Ísland í fararbroddi gegn loftslagsvá

Spár gera ráð fyrir að þessi nýja loftsugu- og kolefnisförgunartækni muni hafa úrslitaáhrif um það hvort markmið Parísarsamkomulagsins náist um miðbik aldarinnar. Íslenskur berggrunnur, tækniþekking og hrein orka gera landið sérlega hentugt til að leiða áframhaldandi þróun þessarar tækni.

Ísland hefur allt sem til þarf til að byggja upp nýjan, loftslagsvænan iðnað sem getur skipt sköpum fyrir framtíð jarðar.

Höfundar eru Berglind Rán Ólafsdóttir, framkvæmdastýra Orku náttúrunnar og Edda Sif Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×