Bílar

60,8% af nýjum seldum bílum hjá Brimborg raf- eða tengiltvinn bílar

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Citroën ë-C4
Citroën ë-C4

Aukning hefur orðið í sölu hreinna rafbíla og tengiltvinn rafbíla (PHEV) hjá Brimborg. Stöðug aukning hefur verið í hlutfalli rafbíla af heildarsölu Brimborgar og náði hlutfallið nýjum hæðum í júlí þegar það fór í 60,8% af seldum fólksbílum. Aukið úrval rafbíla og tengiltvinn rafbíla frá bílaframleiðendum Brimborgar skýrir aukna sölu segir í fréttatilkynningu frá Brimborg.

Nú og næstu mánuði mun Brimborg geta boðið 24 gerðir rafmagnaðra bíla til sölu á Íslandi frá fimm bílaframleiðendum. Úrvalið er allt frá litlum borgarbílum til stórra, 7-9 manna bíla, fjórhjóladrifinna jeppa og allt þar á milli.

Hlutdeild rafbíla í heildarsölu Brimborgar.



Rafbílar frá fimm bílaframleiðendum

Volvo tengiltvinn jepparnir hafa notið vinsælda undanfarin ár og fljótlega mun Brimborg kynna 100% hreinan rafjeppa frá Volvo. Peugeot sækir mjög hratt inn á markaðinn með hreina rafbíla og tengiltvinnbíla og kynnti nýlega rafbílinn, e-2008. Ford kynnti nýverið Kuga PHEV tengiltvinnbíl og Ford Explorer PHEV er nýkominn til Íslands og á næsta ári er von á Ford Mustang Mach-E rafbílnum. Citroën kemur inn á markaðinn í haust og vetur með C5 Aircross PHEV tengiltvinnbíl og e-C4 100% hreinan rafbíl og Mazda mun einnig kynna 100% hreinan rafbíl, MX-30, í haust.

Rafbílar 75% af sölu Brimborgar um áramót

Brimborg er í hópi þriggja stærstu bílaumboðanna þegar kemur að hlutfalli raf- og tengiltvinnbíla af heildarsölu. Með þessu aukna framboði rafmagnaðra bíla reiknar Brimborg með að hlutfall rafmagnaðra bíla af heildarsölu Brimborgar fari yfir 75% um næstu áramót.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×