Innlent

María Sig­rún látin fara úr Kveik

Jakob Bjarnar skrifar
Ingólfur Bjarni sagði að hæfileikar Maríu Sigrúnar lægju ekki á sviði rannsóknarblaðamennsku en hún væri hins vegar frábær fréttalesari.
Ingólfur Bjarni sagði að hæfileikar Maríu Sigrúnar lægju ekki á sviði rannsóknarblaðamennsku en hún væri hins vegar frábær fréttalesari. rúv

Krafta Maríu Sigrúnar Hilmarsdóttur fréttamanns er ekki lengur óskað í fréttaskýringarþættinum Kveik. Innslag sem hún var með í undirbúningi og vænti að sýnt yrði á þriðjudaginn var ekki þar.

María Sigrún er ósátt með hvernig hlutirnir æxluðust en Ingólfur Bjarni Sigfússon ritstjóri Kveiks mun hafa sagt eitthvað á þá leið að hæfileikar hennar lægju ekki á sviði rannsóknarblaðamennsku, en hún væri frábær fréttalesari. Vísir náði ekki í Ingólf Bjarna við vinnslu fréttarinnar.  María Sigrún segist hafa fengið að vita þetta á miðvikudaginn.

„Já, að minna krafta væri ekki óskað áfram þar. Ég held að það sé best að ég tjái sig sem minnst um þetta og betra að þú ræðir við mína yfirmenn sem eru Ingólfur Bjarni og Heiðar Örn Sigurfinnsson fréttastjóri fréttastofunnar.

Kveiksliðið en án Maríu Sigrúnar. Hún birti myndina sjálf á samfélagsmiðlinum X, áður Twitter. Krafta hennar sé ekki óskað lengur.rúv

Um er að ræða ágreining um innslag sem María Sigrún var að vinna að. Hún vill vitaskuld ekki segja um hvað það snerist og síst við blaðamann annars miðils. 

„Ég er að vonast til að það verði þá í Kastljósi. Minn hugur stendur til þess að koma því út.“

Ljóst er að á einhverju hefur gengið en María Sigrún hefur víðtæka reynslu sem fréttamaður, hún hefur starfað í 19 ár hjá RÚV, er með próf í hagfræði og meistarapróf í fjölmiðlafræði.

„Ég er fréttamaður, vil halda áfram að vera fréttamaður og hugsa meira um hvað ég er að fjalla um en hvar ég er að fjalla um það. En ég ætla nú bara að vera keik og koma þessu innslagi út en þetta verður ekki sama umgjörð og til stóð,“ segir María Sigrún.

Hún segir eðlilegt að það komi upp ágreiningur á ritstjórnum sem þessum, hún vildi leysa þennan ágreining en nú hefur verið loku fyrir það skotið, hún er ekki lengur hluti Kveiks.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×