Skoðun

Braskari allra landsmanna

Þorsteinn Sæmundsson skrifar

Nú standa sem hæst byggingaframkvæmdir Landsbankans á dýrustu lóð á Íslandi. Þar hyggst banki sem er nær alfarið í eigu þjóðarinnar hreiðra um sig til frambúar í sextánþúsund og fimmhundruð fermetra húsnæði.

Síðustu kostnaðartölur vegna lóðar og byggingar nema nú um 12 milljörðum króna. Greinarhöfundur hefur mótmælt byggingaráformum vegna nýrra höfuðstöðva Landsbankans harðlega allt frá árinu 2013. Ber þar margt til.

Það er röng ákvörðun að byggja nýjar höfuðstöðvar þjóðarbankans á dýrustu lóð landsins. Höfuðstöðvar þ.m.t. bakvinnsla hagdeild og fleira getur sem best verið hvar sem er svo sem í Breiðholti Árbæ eða úti á landi.

Á þeim tíma sem byggingaráformin hafa staðið hefur starfsmönnum bankans fækkað útibúum hefur verið lokað og dregið úr hefðbundinni bankaþjónustu samfara örum framförum í netþjónustu. Bygging nýrra höfuðstöðva er í hrópandi mótsögn við þá þróun. Líkt og fyrirtækjum í eigu ríkisins er tamt hafa upplýsingar bankans um byggingaráformin verið settar fram smátt og smátt líkt og í teskeiðum meðan ákvarðanir voru teknar og framkvæmdir hafnar.

Sagt hefur verið að með byggingunni minnki húsnæðisþörf bankans verulega vegna þess að fjölmargar byggingar verði rýmdar og seldar eða leigu sagt upp. Ekki virðist hafa verið gripið til þeirra ráða nú þegar þrátt fyrir fækkun útibúa og starfsfólks. Eftir því sem meira af húsinu kemur upp úr jörðinni hafa svo verið dregnar fram nýjar útskýringar. Bankinn ætlar alls ekki að nýta allt húsið heldur leigja stóran hluta þess út. Einmitt það já!

Hvers vegna var þá ráðist í svo stóra framkvæmd? Samkvæmt nýlegum upplýsingum er fyrirhugað að bankinn muni leggjast í leigubrask og freista þess að leigja út um þriðjung nýbyggingarinnar. Það liggur fyrir að nú og í nánustu framtíð verður mjög aukið framboð á skrifstofuhúsnæði til leigu í miðborg Reykjavíkur. Það virðist því misráðið af banka í eigu þjóðarinnar að ætla nú að hella sér út í leigubrask. Það er enda ekki eitt af meginverkefnum ríkisbanka að stunda útleigu fasteigna yfir höfuð.

Það hefur komið í ljós að allar ábendingar um ónauðsyn nýbyggingar á dýrustu lóð Íslands voru og eru á rökum reistar. Við því er aðeins eitt svar: Selja þarf nýbyggingu Landsbanka Íslands í núverandi ástandi og leggja andvirðið í hart leikinn ríkissjóð. Höfuðstöðvum bankans sem taka tillit til færra starfsfólks og aukinnar netvæðingar má koma fyrir á öðrum og hagkvæmari stað.

Höfundur er þingmaður Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×