Skoðun

Allt er breytingum háð

Sigríður Hrund Pétursdóttir skrifar

Börnin eru að hefja nám í nýjum skólum þessa dagana. Nýtt umhverfi, nýir kennarar, nýir skólafélagar. Spennandi og kvíðavænlegt í senn. Óljóst hvernig framgangan verður og eflaust þarf lítið til að útaf bregði og takturinn í deginum feli í sér þyngri skref og hug. Nýjar áskoranir í leik og starfi sem teygja og toga hið hefðbundna og þekkta.

Við fullorðna fólkið erum að upplifa það sama. Umhverfi okkar hefur verið kollvarpað af smáskratta – veiru sem eirir engu og hlýðir illa því skipulagi sem við vorum búin að stilla upp og temja okkur. Við vorum fegin sólinni í sumar, ekki síst þegar við máttum stækka svæðið okkar til að lifa lítillega. En við erum ennþá varfærin, fetandi hálfgert einstigi í von um að stígurinn breikki og grænki von bráðar.

Hvað er gott að hafa í huga við breytingar? Jákvætt hugarfar hraðar för. Skilningur á aðstæðum gefur forskot – breytingar eru óumflýjanlegar og knýja oftar en ekki vöxt og þroska – jafnvel hraðar en í eðlilegu árferði. Iðulega leynast tækifæri í breytingum og þar spilar hugarfar grósku og framfara miklu máli til að opna fyrir sköpunina sem leynist á milli krefjandi áskorana. Óttinn hefur lamandi áhrif og tefur dýnamískt ferli sem fer af stað við breytingar. Þolgæði, þrautseigja og þolinmæði eru sterkir samferðaaðilar til að þola þann titring sem fylgir óvissu umhverfis breytingar. Lærdómsferlið sem breytingar bjóða upp á færa með sér tækifæri til þroska og jafnvel visku.

En ætli lykilinnihaldsefnin séu ekki að tala, hugsa og framkvæma áfram og upp. Við erum öll hæfileikarík, dugmikil og kröftug og eigum að styðja hvert annað til dáða. Sýnin mín til þín: Láttu ljós þitt skína og megi endurkastið speglast í sem flestum öðrum einstaklingum og efla ljósið þeirra.

Höfundur er í stjórn FKA, eigin atvinnurekstri og fjögurra barna móðir.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×