Skoðun

Aðgát skal höfð í nærveru sálar

Jón Pétur Jónsson skrifar

Á undangengnum mánuðum hafa íbúar á Suðurnesjum hrokkið reglulega upp vegna jarðskjálftahrinu sem á upptök sín í námunda við Þorbjörn. Hið sama má segja um fréttaflutning af lögreglunni á Suðurnesjum en reglulega berast fréttir af óróa þar á bæ en nú hefur dómsmálaráðherra tekið þá ákvörðun að Ólafur Helgi Kjartansson, lögreglustjóri, víki úr sinni stöðu.

Sá sem þetta ritar starfaði sem deilarstjóri flugstöðvardeildar lögreglustjórans á Suðurnesjum til margra ára og þekkir því nokkuð vel til starfsemi embættisins og starfsmanna þess.

Það voru miklar áskoranir sem lögreglan á Suðurnesjum stóð frammi fyrir á árunum 2011 til 2018 þegar farþegafjöldi um Keflavíkurflugvöll óx um 20-40% á ári, ár eftir ár, en beita þurfti ýmis konar úrræðum til að bregðast við því ástandi. Samhliða því fjölgaði íbúum á Suðurnesjum vegna aukinna umsvifa á Keflavíkurflugvelli. Ólafur Helgi beitti sér af öllum mætti til þess að sinna þeim áskorunum sem starfsemi lögreglu á alþjóðaflugvellinum kallaði á en ekki síður að löggæslan í umdæminu væri eins og best væri á kosið. Lögreglustjórar landsins standa oft frammi fyrir erfiðum og umdeildum ákvörðunum og því hefur Ólafur Helgi kynnst. Við sem störfum í lögreglunni erum alls ekki hafin yfir gagnrýni og viljum við fá gagnrýni frá fólkinu sem við erum að þjóna. Óskað er þó eftir því að hún sé málefnaleg en ekki byggð á rógburði og getgátum.

Umfjöllunin um embættið hefur verið óvægin og margar persónur nafngreindar, bæði sem þolendur eða gerendur í umfjölluninni. Það sem ég hef hins vegar sannfæringu fyrir er að hlutaðeigandi aðilar séu í sínum daglegum störfum að gera sitt besta og jafnvel meira til. Það verður að hafa það í huga að það eru persónur og fjölskyldur á bak við starfsmenn sem sinna löggæslustörfum og því er vel við hæfi að rifja upp spakmælin: Aðgát skal höfð í nærveru sálar. Kastljósinu hefur m.a. verið beint að lögfræðisviði embættisins sem Alda Hrönn Jóhannesdóttir fer fyrir. Alda hefur beitt sér fyrir margskonar umbótum í löggæslumálum. Má í því sambandi sérstaklega nefna málsmeðferð mansalsmála og innleiðing á aðgerðum gegn heimillsofbeldi. Vona ég svo sannarlega að við fáum að njóta krafta Öldu Hrannar í þeim verkefnum sem framundan eru.

Heimsfaraldurinn sem nú gengur yfir heimsbyggðina hefur áhrif á okkur öll. Embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum gegnir lykilhlutverki við eftirfylgni með sóttvarnaraðgerðum á landamærum og reynir þar á samhæfingu allra hlutaðeigandi aðila. Hafa lögreglumenn, landamæraverðir og aðrir starfsmenn embættisins hafa staðið vaktina af mikilli elju og þrautseigju.

Nú tekur Grímur Hergeirsson við keflinu sem lögreglustjóri og Margrét K. Pálsdóttir verður honum til aðstoðar við að finna leiðir fram á veginn hjá embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum. Óska ég þeim og öllum starfsmönnum embættisins alls hins besta á komandi mánuðum við úrlausn þeirra áskorana sem starfsmenn embættisins standa frammi fyrir. Þá þakka ég Ólafi Helga fyrir framlag hans til löggæslumála á Íslandi og óska honum alls hins besta í nýju starfi í dómsmálaráðuneytinu.

Höfundur er lögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra (og fyrrum yfirmaður flugstöðvardeildar lögreglunnar á Suðurnesjum)



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×