Lífið

„Ethan Is Supreme“ er látinn

Atli Ísleifsson skrifar
Ethan Peters var með rúmlega hálfan milljón fylgjenda á Instagram og um 140 þúsund áskrifenda á YouTube.
Ethan Peters var með rúmlega hálfan milljón fylgjenda á Instagram og um 140 þúsund áskrifenda á YouTube. Getty

Förðunarbloggarinn og áhrifavaldurinn Ethan Peters, betur þekktur sem Ethan Is Supreme, er látinn, sautján ára að aldri.

Fox News hefur eftir Gerald Peters, föður Ethan, að sonur hans hafi verið sérstaklega vingjarnlegur sem hafi samþykkt alla eins og þeir voru.

Í frétt BBC segir að Ethan Peters hafi glímt við fíkn, en enn hefur ekki verið gefið neitt upp um hvað hafi dregið Peters til dauða.

Ethan Peters var með rúmlega hálfan milljón fylgjenda á Instagram og um 140 þúsund áskrifenda á YouTube.

Hann sló í gegn ungur á samfélagsmiðlum, en sumarið 2017 var hann kominn með um 100 þúsund fylgjenda og yfirgaf þá kristinn einkaskóla þar sem virkni hans á samfélagsmiðlum braut í bága við reglur skólans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×