Til: Ríkisstjórnarinnar allrar en þó einkum Katrínar og Áslaugar Örnu Magga Stína skrifar 21. september 2020 14:00 Egypsku systkinin Abdalla, Rewida, Hamza og Mustafa eru nú ásamt foreldrum sínum, þeim Dooa og Ibrahim ekki einungis á flótta undan egypskum stjórnvöldum heldur íslenskum líka. Þau hafa ekki lengur leyfi til að hitta vini sína eða leika sér úti. Þeim er synjað um nætursvefn á öruggum stað - og þau skilja ekki, af hverju. Afhverju þau eru ekki gjaldgeng til þess að standa jafnfætis öðrum börnum í samfélaginu. Því svohljóðandi er dómur íslenskra stjórnvalda. Þeim er fyrirmunað að skilja af hverju þau eru ekki velkomin? Af hverju foreldrar þeirra eru dauðhrædd hverja stund? Af hverju þau megi ekki vera heima hjá sér? Af hverju þau þurfi að fara burt. Þau skilja ekki einu sinni almennilega hvert för þeirra er heitið, því þau þekkja Ísland vel og líta á það sem heimili sitt en ekki Egyptaland. Ég er enginn sál- eða sérfræðingur. Ég er foreldri sem átta mig vel á því á því að skaðinn sem nú þegar hefur verið unninn á sálarlífi Abdalla, Rewida, Hamza og Mustafa, er svo mikill og hræðilegur að hann verður sennilega aldrei að fullu bættur. Fyrir tilstuðlan íslenskra stjórnvalda þar sem fremstar fara þær Katrín Jakobsdóttir og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dragandi á eftir sér “barnamálaráðherrann” Ásmund Einar Daðason. Þau treystu sér í þann skítaverknað að ábyrgjast og standa þétt á bak við höfnun við beiðni fjölskyldunnar um hæli. Hundsuðu allar mannúðlegar forsendur sem þeim var ítrekað bent á að væru til staðar, gerðu það án þess að blása úr nös. Bæði forsætisráðherra og dómsmálaráðherra höfðu vald til þess að koma í veg fyrir ógæfuna en þær kusu - að gera það ekki. Þær höfnuðu þessum börnum og foreldrum þeirra þrátt fyrir mótmæli fagaðla, Umboðsmanns barna, Skólastjórans í skólanum sem þau sækja, sem og mótmæli almennra borgara. Við státum hér af ungri konu á „pólitískri framabraut” sem dómsmálaráðherra. Konu sem aldrei hefur þurft að líða skort eða neyð í þeim skilningi sem hér um ræðir og hefur engar forsendur til að setja sig í spor þeirra sem hún dæmir svo til og frá. Hún og stalla hennar, forsætisráðherrann sjálfur, kona henni aðeins eldri - sem er þar að auki sjálf foreldri, en treystir sér samt til að standa keik í stafni ríkisstjórnar sem kippir öllu öryggi undan óttaslegnum foreldrum með fjögur ung börn? Hvernig er þetta hægt? Það liggur beinast við að spyrja þær ráðherrana beint? Katrín og Áslaug Arna; Hvernig gátuð þið fengið það af ykkur gera þetta? Hvernig gátuð þið fengið það af ykkur að hanga eins og hundar á roði á ákvörðun sem er svo ómannúðleg og ógeðfelld að nánast öll íslenska þjóðin er í áfalli? Vera má að þið hafið hlotið strangt uppeldi í ykkar pólitísku flokkum en varla hafið þið alveg glatað öllu persónulegu sjálfstæði, eða hvað? Þið, sem manneskjur í æðstu valdastöðum, getið tekið sjálfstæðar ákvarðanir. Það er ykkar hlutverk. Þið eruð æðsta vald. Þið eruð á launum hjá okkur, íslensku þjóðinni til að taka ábyrgar ákvarðanir á meðan við störfum við annað. Ákvarðanir sem þjóðin sem þið eigið að þjónusta stendur á bak við. Ekki siðlausar ákvarðanir sem vinna sálarleg skemmdarverk á saklausum barnssálum og skelfingu lostnum foreldrum þeirra. Ekki ákvarðanir sem brjóta á mannréttindum, heldur ákvarðanir sem eru byggðar fyrst og fremst á þeim grundvallargildum sem við ætlum fyrirfram að ykkur hafi eins og flestum, verið innrætt í æsku. Þar sem umhyggja og umburðarlyndi, kærleikur og samlíðan með öðrum manneskjum, liggur til grundvallar. Þess háttar ákvarðanir. Ef eðlisávísunin segir ykkur hins vegar, Áslaug Arna og Katrín, að þið séuð með ykkar ákvörðunum, um að standa á bak við brottvísun egypsku fjölskyldunnar, virða alla mannréttindasáttmála að vettugi ef hún segir ykkur að þið séuð að breyta rétt þá ráðlegg ég, með vinsemd, hvíld frá öllum opinberum störfum um óákveðin tíma og hvet ykkur til að leita í ró og næði að manneskjunni í ykkur sjálfum. Ég skora á ykkur í framhaldi, Katrín og Áslaug Arna að rifja upp hvaða merkingu orðið samábyrgð hefur. Hvert viðtalið eftir annað sem við ykkur hefur verið tekið um mál fjölskyldunnar er óhugnarlega lýsandi fyrir þá firringu sem hlýtur að vera við lýði á meðal ykkar í ríkisstjórninni. Að leyfa sér til dæmis, Katrín, eftir að ákveðið var að brjóta á stjórnarskrárvörðum rétti egypsku systkinanna, að svara því til að mál fjölskyldunnar hafi ekki sérstaklega verið tekið fyrir á ríkisstjórnarfundi en málefni hælisleitenda hefðu verið verið rædd, heildstætt” er hreint og beint óhugnarlegt. „Rædd heildstætt”? Hvernig ræðir maður heildstætt um fjölskyldur á flótta, Katrín? Þegar tugir stóðu hrópandi fyrir utan ráðherrabústaðinn og afhentu dómsmálaráðherra fimmtán þúsund nafna undirskriftarlista, þá lætur þú eins og engin ástæða hafi verið til að gefa því nokkurn gaum á fundinum en ríkisstjórnin öll hafi bara spjallað almennt um “málefni” hælisleitenda. Þetta er svo sjokkerandi fyrir þann sem horfir á og hlustar, að agndofa, er sennilega eina orðið sem nær að lýsa áhrifunum. Kannski er það ætlunin. Hvað á maður að halda? Kannski er ætlunin að gera kaldlyndið og siðleysið svo hversdagslegt að það hætti að lokum að vekja eftirtekt? Er tilgangurinn að rækta mannúðarblindu og siðleysi meðal þjóðarinnar? Ef svo er, held ég þið hafið misreiknað dæmið hrapalega. Það mun ekki takast. Ekki hjá þessari þjóð. Foreldrum er eðlislæg sú tilfinning að þjást fyrir vanlíðan barna sinna. Börn þola að sama skapi ekkert verr en að foreldrum þeirra líði illa. Í báðar áttir gildir sá tilfinningalegi sári vanmáttur foreldra og barna að geta ekki tekið á sig vanlíðan hins. Spurningin sem liggur í loftinu er þessi: Hvernig hafa dagarnir liðið að undanförnu og hvarnig blasa næstu dagar við ykkur, Katrín og Áslaug Arna og svo ég ávarpi nú ríkisstjórnina alla? Hvernig munuð þið ná, sem teljið ykkur ábyrga ríkisstjórn, vakna að morgni hvers dags, næstu daga? Skottist þið bara í vinnuna og heilsið félögunum hressilega? Hvernig er ykkur innanbrjósts? Finnið þið til einhverrar vanlíðunar? Er eitthvað sem truflar hugarró? Ég spyr því ég er forvitin um mannlega hegðun. Standa vonir ykkar til að hádegismaturinn í mötuneytinu verði góður í dag? Ætlið þið í ræktina eða kannski út að hlaupa eftir vinnu? Ég gleðst einlæglega yfir því atlæti sem þið hafið átt að fagna í lífi ykkar. Hvort heldur ykkur dettur í hug að heilsa upp á fjölskyldu eða vini í frítíma, fara í ræktina, eða rölta hægt eftir göngustíg og finna haustið nálgast þá hvet ég ykkur til að gera hvaðeina sem hugurinn stendur til. Þið eigið skýlausan rétt á að lifa lífinu að eigin geðþótta og vera hamingjusöm. Þið búið við mikil lífsgæði og gegnið ábyrgðarstöðum. Það verður varla betra miðað við gildismat dagsins í dag. Hún er kannski svolítið snúin tilveran hjá ykkur á stundum en það er mjög gaman líka. Þið gegnið æðstu stjórnunarstöðum, eruð ráðherrar. Þið eruð útvalin, kjörin til að gegna einu mikilvægasta hlutverki í lýðræðissamfélagi. Þið eruð aðal og það er án nokkurs vafa ánægjulegt fyrir ykkur að hugsa til tækifæranna sem þið fenguð og nýttuð svo vel. Þar sem menntun ykkar kom að góðu gagni og þið fenguð að fást við það sem hugur ykkar stóð til. Þannig á það að vera, fyrir alla. Finnst ykkur það ekki? Ég mæli að endingu með að Sigríður Andersen verði ekki send aftur til að tala máli mismununar á öldum ljósvakans og hlýt að krefjast þess líka að barnamálaráðherra afsali sér titlinum. Frá: Möggu Stínu Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Brottvísun egypskrar fjölskyldu Hælisleitendur Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Jarðakaup í nýjum tilgangi Halla Hrund Logadóttir Skoðun Eru orkumálin að fara úr böndunum? Jónas Guðmundsson Skoðun Forsetaframboð í Fellini stíl Stefán Ólafsson Skoðun Borgar þú 65 prósent skatt af þínum tekjum? Guðfinnur Sigurvinsson Skoðun Brúarsmið á Bessastaði Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir Skoðun Ókostir forsetaframbjóðandans Katrínar Jakobsdóttur Alfreð Sturla Böðvarsson Skoðun Skipulagsmál og uppbygging í Árborg Bragi Bjarnason Skoðun Af auðvaldsmönnum og undirlægjuhætti Ester Hilmarsdóttir Skoðun Norska veiðistöðin Friðrik Erlingsson Skoðun Ég kýs… Gísli Ásgeirsson Skoðun Skoðun Skoðun Ókostir forsetaframbjóðandans Katrínar Jakobsdóttur Alfreð Sturla Böðvarsson skrifar Skoðun Eru orkumálin að fara úr böndunum? Jónas Guðmundsson skrifar Skoðun Skipulagsmál og uppbygging í Árborg Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Ég kýs… Gísli Ásgeirsson skrifar Skoðun Forsetaframboð í Fellini stíl Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Borgar þú 65 prósent skatt af þínum tekjum? Guðfinnur Sigurvinsson skrifar Skoðun Brúarsmið á Bessastaði Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Nú getum við brotið blað Ragnheiður Davíðsdóttir skrifar Skoðun Við þurfum loftslagsaðgerðir, ekki grænþvott Andrés Ingi Jónsson skrifar Skoðun Af hverju bara hálft skref áfram? Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Baldur í þágu mannúðar og samfélags Anna María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvar er Reykjavegur? Ari Trausti Guðmundsson skrifar Skoðun Af auðvaldsmönnum og undirlægjuhætti Ester Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Hafðu áhrif á líf barna Ída Björg Unnarsdóttir skrifar Skoðun Stórbætum samgöngur Logi Einarsson skrifar Skoðun Norska veiðistöðin Friðrik Erlingsson skrifar Skoðun Köllum það réttu nafni: Fordóma Derek Terell Allen skrifar Skoðun Ótrúverðugt plan að annars góðum markmiðum Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Formleg uppgjöf Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Örlætisgerningur Vilhjálmur H. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Fjármunum veitt þangað sem neyðin er mest Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Sjálfbær framtíð Vestfjarða Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir,Aðalsteinn Óskarsson skrifar Skoðun Burt með pólitík á Bessastöðum Kristmundur Carter skrifar Skoðun Náttúran njóti vafans, ótímabundið Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Íþróttir fyrir öll, jöfnum og bætum leikinn Hólmfríður Sigþórsdóttir,Anna Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Nýr „loftslagsvænn“ iðnaður - neikvæð áhrif á lífríki og fiskveiðar Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun „Almennings“ samgöngur? Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Góður forseti G. Pétur Matthíasson skrifar Skoðun Hvers vegna Halla Tómasdóttir? Guðjón Sigurðsson skrifar Skoðun Heimildin sem hvarf úr frumvarpi matvælaráðherra Vala Árnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Íþróttir fyrir öll, jöfnum og bætum leikinn Hólmfríður Sigþórsdóttir,Anna Þorsteinsdóttir skrifar
Skoðun Nýr „loftslagsvænn“ iðnaður - neikvæð áhrif á lífríki og fiskveiðar Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir skrifar