Viðskipti innlent

Stærsta rafíþróttamót heims haldið á Íslandi í nóvember

Eiður Þór Árnason skrifar
Frá lokadegi League of Legends Mid-Season Invitational mótsins sem haldið var í Reykjavík í maí.
Frá lokadegi League of Legends Mid-Season Invitational mótsins sem haldið var í Reykjavík í maí. Riot Games/Colin Young-Wolff

Stærsta rafíþróttamót heims, heimsmeistaramótið í League of Legends, verður haldið í Reykjavík dagana 5. október til 6. nóvember. Þetta staðfestu Riot Games, framleiðendur vinsæla tölvuleiksins og skipuleggjendur mótsins, fyrr í dag.

Um er að ræða lokamót keppnistímabilsins í atvinnumannadeild League of Legends þar sem leikið er um milljónir bandaríkjadali í verðlaunafé. Þetta er í annað sinn sem stórt mót í League of Legends tölvuleiknum fer fram í Reykjavík en síðastliðið vor fór þar fram boðsmótið Mid-Season Invitational í Laugardalshöll. 

Áður var uppi orðrómur um að heimsmeistaramótið yrði haldið hérlendis og fullyrti netmiðilinn Dot Esports í gær að mótið myndi hefjast í Reykjavík í október. Upphaflega stóð til að halda það í Kína en hætt við það vegna sóttvarnaaðgerða þar í landi. 

Beinar útsendingar frá keppni í leiknum njóta mikilla vinsælda og fylgdust um 100 milljón áhorfendur með úrslitaviðureign heimsmeistaramótsins árið 2019 í beinni útsendingu.

„Við erum mjög spennt fyrir að geta boðið upp á ótrúlega upplifun af heimsmeistaramótinu á Íslandi, þar sem bestu liðin og leikmennirnir fá tækifæri til að keppa,“ er haft eftir John Needham, yfirmanni rafíþrótta hjá Riot Games, í tilkynningu frá Íslandsstofu.

Stendur yfir í rúmar fjórar vikur

Að sögn Íslandsstofu má búast við miklum umsvifum í kringum mótið, en í heildina er reiknað með að um og yfir 600 starfsmenn og keppendur fylgi mótinu sem stendur í rúmar fjórar vikur. Mótið verður leikið í gömlu Laugardalshöllinni og er gert ráð fyrir að því fylgi lítið rask fyrir aðra starfsemi í Laugardalshöll þar sem fjöldabólusetningum verður lokið.

Ólafur Hrafn Steinarsson, formaður Rafíþróttasambands Íslands (RÍSÍ), segir að það sé mikill heiður að Riot komi aftur til Íslands. Þetta sé í fyrsta skipti í sögu leiksins sem allir alþjóðlegu viðburðir ársins fari fram í sama landi. 

„Með þessum viðburðum kemur mikil landkynning, gjaldeyristekjur og svo er þetta gífurleg innspýting á áhuga og framtakssemi í rafíþróttasamfélagið á Íslandi. Þetta styrkir líka stöðu íslenskra rafíþrótta og íslensks leikjaiðnaðar á alþjóðavettvangi sem getur skilað miklu til samfélagsins á komandi árum og áratugum,“ segir hann í tilkynningu.

Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, segir að ákvörðun Riot sé mikill gæðastimpill á fagmennsku íslenskra fyrirtækja sem vinna við framkvæmd viðburða.

„Að sama skapi eru þetta spennandi tækifæri fyrir bæði íslenskar rafíþróttir og íslenskan leikjaiðnað, en við gerum ráð fyrir að mikill áhugi verði á mótinu og Íslandi á meðan á því stendur.”


Tengdar fréttir

Heimsmeistaramótið verði haldið í Laugardalshöll

Vefmiðillinn Dot Esports færði okkur þær fréttir á dögunum að þeirra heimildarmenn fullyrði að heimsmeistaramótið í League of Legends verði haldið á Íslandi í ár. Mótið verður haldið frá 5. oktober og miðillinn segir að það muni fara fram í Laugardalshöll.

Fullyrða að heimsmeistaramótið verði haldið á Íslandi

Heimsmeistaramótið í tölvuleiknum League of Legends átti að fara fram í Kína í ár, en vegna sóttvarnaraðgerða þar í landi hefur mótið verið fært til Evrópu. Ekki hefur enn verið gefið upp í hvaða landi, en vefmiðillinn dotesports.com fullyrðir að mótið fari fram á Íslandi.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×