Makamál

Bassi Maraj: „Já, ég er að flinga“

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Raunveruleikastjarnan Bassi Maraj genginn út. 
Raunveruleikastjarnan Bassi Maraj genginn út.  Anna Margrét Árnadóttir

Heyrst hefur að raunveruleikastjarnan og tónlistarmaðurinn Bassi Maraj sé svífandi um á bleiku skýi þessa dagana. Bleiku hjartalaga skýi. 

Í samtali við Makamál staðfestir Bassi að vera byrjaður í sambandi en vill þó ekki gefa upp hver sá heppni er.

„Já, ég er að flinga,“ segir Bassi með sínu frægja slangurmáli. En fyrir þá sem ekki vita þá þýðir það að vera að flinga að vera byrjaður í hitta einhvern, á rómantískan hátt. 

Ég ætla ekki að segja hver það er en ég get sagt eitt, hann er „professional Basketball player!“

Bassi var einn af þeim sem komu fram í stefnumótaþættinum Fyrsta blikið á Stöð 2 í haust en þar opnaði hann sig um það að hafa aldrei verið í eiginlegu sambandi og hafa aldrei farið á stefnumót.

Klippa: Fyrsta blikið - 5. þáttur

Örvar amors hafa þó greinilega náð til raunveruleikastjörnunnar þrátt fyrir að hann hafi ekki fundið ástina í Fyrsta blikinu.

Bassi segist vera að njóta lífsins í botn þessa dagana og vill hann hvetja einhleypt fólk á öllum aldri að sækja um í næstu seríu af Fyrsta blikinu

Ástin og lífið, maður lifandi. 

Fyrir áhugasama er hægt að nálgast Instagram prófíl Bassa hér. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×