Rafíþróttir

Heimsókn í skóla: Eva vill að Menntaskólinn á Tröllaskaga fái nýtt nafn

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Eva Margrét Guðnadóttir ræddi við keppendur Menntaskólans á Tröllaskaga í gegnum fjarksiptabúnað.
Eva Margrét Guðnadóttir ræddi við keppendur Menntaskólans á Tröllaskaga í gegnum fjarksiptabúnað.

Síðasta viðureign átta liða úrslita Framhaldsskólaleika Rafíþróttasamtaka Íslands, eða FRÍS, fór fram síðastliðinn miðvikudag þar sem Menntaskólinn á Tröllaskaga og Tækniskólinn áttust við. Eins og síðustu ár tók Eva Margrét Guðnadóttir púlsinn á nemendum skólanna fyrir viðureignina.

Eva skellti sér ekki beint í Menntaskólann á Tröllaskaga, en var þó í fjarsambandi við keppendur.

Á milli þess sem skólinn var skoðaður og Eva stakk upp á að breyta nafni skólans einfaldlega í „Tröllaskólinn“ ræddi hún einnig við keppendur í gegnum fjarskiptabúnað.

Menntaskólinn á Tröllaskafa þurfti þó að lokum að sætta sig við tap gegn ríkjandi meisturum Tækniskólans síðastliðinn miðvikudag og skólinn er því úr leik. Heimsókn Evu í skólann má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.

Klippa: Heimsókn í skóla: Eva vill að Menntaskólinn á Tröllaskaga fái nýtt nafn

Framhaldsskólaleikarnir halda svo áfram í kvöld þegar Fjölbrautaskólinn í Garðabæ og Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi mætast í fyrri undanúrslitaviðureign mótsins. Viðureignin verður í beinni útsendingu á Stöð 2 eSport og hér á Vísi, en bein útsending hefst klukkan 19:30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×