Erlent

Rússum hafnað í at­kvæða­greiðslum um nefndar­sæti hjá Sam­einuðu þjóðunum

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Rússar njóta lítilla vinsælda hjá Sameinuðu þjóðunum um þessar mundir.
Rússar njóta lítilla vinsælda hjá Sameinuðu þjóðunum um þessar mundir. AP/Sputnik/Mikhail Klimentyev

Rússland fór á mis við þrjú sæti í ráðum og nefndum Sameinuðu þjóðanna í þessari viku. Atkvæðagreiðslur um sætin fóru fram á vettvangi Efnahags- og félagsmálaráðsins (ECOSOC).

Rússar vildu fá sæti í nefnd um stöðu kvenna (CSW) en töpuðu fyrir Rúmeníu í atkvæðagreiðslunni hjá hinu 54 ríkja ECOSOC. Þeir biðu einnig lægri hlut þegar kom að atkvæðagreiðslu um sæti í framkvæmdastjórn UNICEF, þar sem Eistar hrepptu sætið.

Þá sigruðu Armenía og Tékkland í leynilegri atkvæðagreiðslu um sæti í nefnd um afbrotavarnir og refsiviðurlög (CCPC). 

Linda Thomas-Greenfield, sendiherra Bandaríkjanna við Sameinuðu þjóðirnar, sagði niðurstöður atkvæðagreiðslanna skýr skilaboð frá ECOSOC um að ekkert ríki ætti að gegna stöðum við mikilvægar stofnanir Sameinuðu þjóðirnar á sama tíma og þau brytu gegn sáttmálum samtakanna.

Rússar fengu sæti í nefnd um félagslega þróun, sem Bandaríkjamenn og Bretar sögðu sig frá í mótmælaskyni, og sæti í milliríkjavinnuhóp sérfræðinga um alþjóðlega endurskoðunarstaðla.

Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt sex ályktanir gegn Rússlandi, þá síðustu 23. febrúar síðastliðinn þegar ár var liðið frá innrás Rússa í Úkraínu. Þar var kallað eftir því að stjórnvöld í Moskvu létu af átökum og hörfuðu frá landinu.

Ályktunin var samþykkt með 141 atkvæði gegn 7 en 32 ríki sátu hjá.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×