Innlent

„Þá þarf hún bara að biðja lög­fræðingana um breyta kerfinu með sér“

Helena Rós Sturludóttir skrifar
Rósa Líf Darradóttir læknir mætti á mótmælin gegn hvalveiðum í dag.
Rósa Líf Darradóttir læknir mætti á mótmælin gegn hvalveiðum í dag. Helena Rós

Rúmlega hundrað manns á öllum aldri mættu í miðbæ Reykjavíkur í dag til að mótmæla hvalveiðum á sama tíma og þjóðarleiðtogarnir mættu í Hörpu. Einn skipuleggjanda segir lög hafa verið brotin og ráðherra geti ekki leyft því að viðgangast út þetta veiðiár.

Hvalavinir létu rigningu og skert aðgengi í miðbæ Reykjavíkur ekki stöðva sig og mættu til að mótmæla hvalveiðum í ljósi svartrar niðurstöðu úr skýrslu Matvælastofnunar. Mótmælin hófust við Skólavörðustíg og mætti fólk með allskyns pappaspjöld og pappírshvali. Síðan var gengið niður að Arnarhóli þar sem ræðuhöld fóru fram.

Mótmælendur voru sammála um að stöðva þyrfti hvalveiðar strax í ljósi niðurstöðu skýrslunnar sem sýndi að einn af hverjum fjórum hvölum sem veiddir voru við Ísland í fyrra var skotinn oftar en einu sinni. 

Í skýrslunni kom fram að meta þyrfti hvort veiðar á stórhvelum geti uppfyllt markmið laga um velferð dýra. Einum hval með skutul í bakinu hafi verið veitt eftirför í fimm klukkustundir án árangurs.

Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, var meðal mótmælenda og sagði hann mikilvægt að stoppa hvalveiðar strax í sumar. Hann segir skýrsluna mjög skýra og það sé óréttlætanlegt að halda áfram veiðum. Þá lýsi yfirlýsing matvælaráðherra um að ekki sé hægt að afturkalla veiðileyfið fyrir þetta ár uppgjöf. 

„Ef einhverjir lögfræðingar uppi í ráðuneyti eru að segja henni að hún geti ekki bannað hvalveiðar þá þarf hún að biðja lögfræðingana um breyta kerfinu með sér,“ sagði Andrés Ingi meðal annars. 

Valgerður Árnadóttir, formaður Samtaka grænkera og einn skipuleggjanda mótmælanna, segir mótmæli gegn hvalveiðum ekki ný af nálinni. 

„Við höfum reyndar mótmælt öll tíu árin sem Kristján hefur farið út á veiðar. Skýrslan var bara svo rosaleg að við fundum að við urðum að gera eitthvað.“ 

Björk Guðmundsdóttir var á meðal gesta á hvalveiðamótmælum á Arnarhóli í dag.

Valgerður segir hvalavini krefjast þess að veiðarnar verði stöðvaðar og bannaðar. „Þetta eru ekki aðferðir sem við eigum að leyfa að viðgangast að murka lífið úr hvölum í marga klukkutíma.“

Yfirlýsingar matvælaráðherra séu hreinlega ekki réttar. „Það er mjög skýrt í lögum að það eru viðurlög við því að brjóta þessu lög sem Kristján Loftsson hefur sannarlega brotið. Ég get ekki séð að hún geti leyft því að viðgangast að hann drepi 150 til 200 hvali í sumar með þessum hræðilegu aðferðum,“ segir hún að lokum. 


Tengdar fréttir

Hugsanavillan við hvalveiðar

Það hefur verið forvitnilegt að fylgjast með viðbrögðum ráðherra við skýrslu MAST um hvalveiðar. Skýrslan segir okkur með skýrum hætti að veiðarnar uppfylla ekki þær kröfur sem nútíminn setur á svona veiðar.

Aftur­köllun leyfis gæti þýtt bætur til Hvals

Ákvæði stjórnsýslulaga, um tjón leyfishafa, meðalhófsreglu og fleira, eru ástæða þess að Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, afturkallar ekki hvalveiðileyfi Hvals hf. Ákvörðunin hefur verið gagnrýnd í ljósi þess að í leyfinu segir að ráðherra hafi rétt til afturköllunar.

Gætu dregið ríkið fyrir dóm vegna að­gerða­leysis

Náttúruverndarsamtök skoða nú hvort þau geti dregið íslenska ríkið fyrir dómstóla fyrir aðgerðaleysi í hvalveiði- og loftslagsmálum. Lögmaður Náttúruverndarsamtaka Íslands segir undiröldu gegn hvalveiðum allt öðruvísi nú en undanfarin ár.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×