Innlent

„Við erum gapandi á þessu“

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Feðginin Margrét Lillý og Einar Björn vilja tryggja að ekkert barn upplifi það sem Margrét þurfti að ganga í gegnum í æsku. 
Feðginin Margrét Lillý og Einar Björn vilja tryggja að ekkert barn upplifi það sem Margrét þurfti að ganga í gegnum í æsku.  vísir/bjarni

Faðir ungrar konu sem ólst upp við vanrækslu og ofbeldi móður án eiginlegra afskipta barnaverndaryfirvalda á Seltjarnarnesi segir sýknudóm yfir bænum hafa komið verulega á óvart. Standi dómurinn sé ljóst að einstaklingar í baráttu við kerfið, eigi ekki séns þegar kemur að dómstólum. 

Í lok árs 2019 steig Margrét Lillý Einarsdóttir fram í Kompás og opnaði sig um uppvaxtarár sín sem einkenndust af vanrækslu og ofbeldi af hálfu móður. Síðan þá hafa bæjaryfirvöld Seltjarnarnesbæjar beðist opinberlega afsökunar og Barnaverndarstofa gefið út skýrslu þar sem fram kemur að verulegir annmarkar hafi verið á meðferð barnaverndaryfirvalda í máli Margrétar. Tilkynningar hafi ekki verið skráðar og málið rannsakað með ómarkvissum og óskýrum hætti.

Feðginin höfðuðu mál á hendur Seltjarnarnesbæ og var dómur kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag þar sem bærinn var sýknaður af tólf milljóna króna skaðabótakröfu.

„Viðbrögðin eru bara mjög skrítin, við erum gapandi á þessu og áttum engan veginn von á þessu,“ segir Einar Björn Tómasson, faðir Margrétar.

Halda baráttunni áfram

Feðginin geti ekki geta unað niðurstöðunni og því muni þau áfrýja málinu til Landsréttar.

„Því þetta er galið, að fólk komist upp með þetta. Sérstaklega fólk sem vinnur með börnunum okkar. Það er galið að þau geti brotið á þeim trekk í trekk, eins og í þessu tilviki.“

„Við áfrýjum og áfrýjum og höldum okkar baráttu áfram. Það er alveg með ólíkindum að einstaklingar eins og ég og dóttir mín þurfum að standa í þessu til að fá réttlæti og maður kemur alls staðar að lokuðum dyrum.“

Í dómnum, sem fréttastofa hefur undir höndum kemur fram að ekki sé ástæða til að efast um að Margrét hafi búið við erfiðar aðstæður vegna veikinda móður en að ekki sé hægt að álykta að þeir erfiðleikar séu afleiðingar af ólögmætri og saknæmri háttsemi starfsmanna bæjarins. Jafnframt segir að ekki sé hægt að staðhæfa að atburðarásin og uppeldisaðstæður hennar hefðu farið á annan og betri veg ef öllum formreglum hefði verið fylgt.

„Ef þetta er niðurstaðan þá er dómskerfið ekki eitthvað sem einstaklingar geta treyst á, sýnist mér.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×