Innlent

Refsing fyrir að nauðga stjúp­dóttur æsku­vinar þyngd

Árni Sæberg skrifar
Landsréttur kvað upp dóm í málinu í dag.
Landsréttur kvað upp dóm í málinu í dag. Vísir/Vilhelm

Ingi Valur Davíðsson, Ólafsfirðingur á fertugsaldri, hefur verið dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar fyrir að nauðga sextán ára stjúpdóttur æskuvinar síns. 

Þetta var niðurstaða Landsréttar, sem kvað upp dóm í málinu í dag og þyngdi dóm Héraðsdóms Norðurlands eystra.

Í dóminum segir að Ingi Valur hafi verið æskuvinur stjúpföður stúlkunnar og tíður gestur á heimili fjölskyldu hennar. Hann hafi til að mynda verið á heimilinu svo til á hverjum degi heilt sumar, í þeim tilgangi að hjálpa til við framkvæmdir.

Ítarlega er farið yfir málsatvik í fréttinni hér að neðan.

Í dómi Landsréttar segir að Ingi Valur og stúlkan hafi verið ein til frásagnar um það sem gerðist inni í herbergi á heimili Inga Vals umrætt kvöld. Mikið hafi borið á milli í frásögnum þeirra um það hvort stúlkan hefði veitt samþykki fyrir því að þau hefðu samræði.

Mikill þroskamunur

Þegar atvik málsins áttu sér stað hafi Ingi Valur verið 37 ára en stúlkan 16 ára og því mikill aðstöðu- og þroskamunur á þeim. Framburður stúlkunnar hafi verið talinn trúverður en framburður Inga Vals ótrúverðugur um mikilvæg atriði.

Meðal annars hafi framburður Inga Vals um hvernig hann leitaði samþykkis fyrir samræðinu ekki verið eindreginn, að mati réttarins. Því hafi framburður stúlkunnar um að samræðið hafi verið gegn vilja hennar verið lagður til grundvallar og niðurstaða hins áfrýjaða dóms um sakfellingu Inga Vals því staðfest

Fallist á þyngingu

Ríkissaksóknari áfrýjaði málinu til Landsréttar og krafðist þess að refsing Inga Vals yrði þyngd. Í dómi Landsréttar segir að við ákvörðun refsingar hafi verið litið til þess að Inga Val hafi ekki áður verið gerð refsing.

Hins vegar hafi jafnframt verið tekið mið af því að brot hans hafi verið framið gegn stúlku sem þá vareinungis16 ára. Í ljósi alvarleika brots Inga Vals og ákvæða almennra hegingarlaga um refsiþyngingu þyki refsing hans hæfilega metin þriggja ára fangelsisvist.

Þá var Ingi Valur dæmdur til þess að greiða stúlkunni 2,5 milljónir í miskabætur og til að greiða allan áfrýjunarkostnað málsins, 2,2 milljónir króna. Honum var einnig gert að greiða allan sakarkostnað í héraði 2,5 milljónir króna.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×