Innlent

Þurfa að loka göngu­deildum yfir sumar­tímann í miðjum ópíóða­far­aldri

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Valgerður Rúnarsdóttir er yfirlæknir á Vogi.
Valgerður Rúnarsdóttir er yfirlæknir á Vogi. arnar halldórsson

Göngudeildum SÁÁ og meðferðarstöðinni í Vík verður lokað í sumar vegna fjárskorts á sama tíma og fréttir berast af ópíóðafaraldri. Yfirlæknir segist ekkert hafa heyrt frá heilbrigðisráðherra eftir að hann boðaði aukna fjárveitingu fyrir rúmum tveimur vikum.

Fyrir rúmum mánuði kynnti heilbrigðisráðherra á ríkisstjórnarfundi hugmynd um að veita 170 milljónum króna í aðgerðir til að sporna við skaða af völdum ópíóðafaraldurs.

Þann 9. maí sagði heilbrigðisráðherra í viðtali við Heimildina að ríkisstjórnin hefði samþykkt að hækka upphæðina og verja 225 milljónum í málaflokkinn.

Í dag, rúmum tveimur vikum seinna hefur yfirlæknir á Vogi ekkert heyrt frá ráðuneytinu.

„Nei ekki eftir þessa yfirlýsingu frá ráðherra, þannig það hlýtur að fara að bera á því. Við erum bara enn úti í straumnum að sinna fólkinu og erum að taka á móti fólki með ópíóðafíkn hér alla daga á Vogi og reyna að sinna þeim,“ segir Valgerður Rúnarsdóttir, yfirlæknir á Vogi í viðtali við Stöð 2.

Hátt í þrjú hundruð í meðferð

Hún fagnar ákvörðun um fjárveitingu og vonast til að heyra frá ráðuneytinu sem fyrst - enda veiti Vogi ekki af auknum fjármunum í sinni starfsemi.

„Nei, það er enn sami samningur eins og frá árinu 2014 fyrir níutíu manns, en núna um þessar mundir eru 270 í meðferðinni.“

Vegna fjárskorts segir hún að loka þurfi göngudeildum yfir sumartímann.

„Við höldum alltaf öllu úti hér á sumrin á Vogi, en þetta árið þurfum við því miður að loka í meðferðinni sem er uppi á Vík í fjórar vikur og á göngudeildunum okkar á sumarleyfistímum. Við höfum ekki ráð á að hafa afleysingu þetta árið því miður.“ 

Útséð með sumarið

Ef þið hefðuð fengið fjárveitingu fyrr, hefðuð þið þá getað haft opið? 

„Já við hefðum getað gert það, eins og í fyrra þá gátum við gert það en það er ekki möguleiki núna. Við getum áætlun áður en árið byrjar þannig það er útséð með þetta sumar allavegana.“

Þannig þú bíður bara eftir kalli frá ráðuneytinu? „Já það hlýtur að koma mjög fljótt.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×