Innlent

Gruna að sænski greifinn hafi óttast hald­lagningu á Biblíu­bréfinu

Kristinn Haukur Guðnason skrifar
Gísli Geir, sýningarhaldari NORDIA, segir afar hæpið að bréfinu hafi verið stolið á sínum tíma.
Gísli Geir, sýningarhaldari NORDIA, segir afar hæpið að bréfinu hafi verið stolið á sínum tíma. Vísir/Einar

Sænskur greifi neitaði íslenskum sýningarhöldurum um að fá að sýna hið verðmæta Biblíubréf. Greifinn hefur áður lánað þeim bréfið en sýningarhöldurum grunar að hann þori því ekki eftir útgáfu heimildarmyndar þar sem sagt er að bréfinu hafi verið stolið.

„Við föluðumst eftir að fá bréfið en hann vildi ekki senda það til Íslands að svo stöddu,“ segir Gísli Geir Harðarson, frímerkja og myntkaupmaður og formaður sýningarnefndar NORDIA 2023. Það er samnorræn safnarasýning sem að þessu sinni er haldin í Ásgarði í Garðabæ fram á sunnudag.

Eigandi hins svokallaða Biblíubréfs er sænski greifinn Douglas Storckenfeldt, sem er stórtækur frímerkjasafnari. „Hann á flottasta íslenska safnið í heiminum í dag,“ segir Gísli Geir. „Í tilefni af 150 ára afmæli íslenska frímerkisins langaði okkur að fá bréfið.“

200 milljóna króna virði

Biblíubréfið, sem er frá árinu 1874, er með verðmætustu frímerktu skjölum í heimi því á því eru 23 einstök þjónustufrímerki, þau fyrstu á Íslandi. Þjónustufrímerki voru merki sem eingöngu voru til nota hjá opinberum aðilum.

Að sögn Gísla Geirs er uppreiknað verð bréfsins 200 milljónir króna, miðað við síðustu þekktu sölu fyrir um 40 árum síðan.

Greifinn sendi bréfið hingað til lands árið 2018 þegar NORDIA fór síðast hér fram, ásamt öðrum íslenskum merkjum sínum. Öryggisgæsla var þá mikil og Securitas vörður vaktaði bréfið.

Íslendingar ættu heimtingu á bréfinu

Árni Thorsteinsson, landfógeti, sendi bréfið til Þorsteins Jónssonar, sýslumanns í Árnessýslu, og fyrst um sinn var það varðveitt í hans skjalasafni. Heitið á bréfinu vísar til þess að það fannst innan í biblíu. Bréfið hefur verið skorið í tvennt og helmingurinn var seldur úr landi árið 1973.

Íslendingar eiga heimtingu á einu verðmætasta frímerkta skjali heims - Vísir (visir.is)

Í heimildarmyndinni Leyndarmálið, sem sýnd var í Ríkissjónvarpinu árið 2021, var fjallað um Biblíubréfið. Í kjölfarið á sýningu myndarinnar rannsökuðu sérfræðingar Þjóðskjalasafnsins málið og staðfestu að bréfið væri eign íslenska ríkisins sem hafði verið tekin úr opinberu skjalasafni.

Samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn eigi ríkið heimtingu á að fá biblíubréfið afhent. Var Lilja Dögg Alfreðsdóttir, þáverandi menntamálaráðherra, minnt á þetta en hún brást ekki opinberlega við erindinu á sínum tíma.

Hæpið að bréfið sé stolið

Í afsvarsbréfi greifans til sýningahaldara NORDIA er ekki sagt berum orðum að hann þori ekki að senda bréfið til Íslands. Grunar þá hins vegar að ástæðan sé sú að hann sé óttasleginn um að tapa bréfinu, það er að íslensk yfirvöld haldleggi það.

Biblíubréfið inniheldur 23 einstök þjónustufrímerki og er 200 milljón króna virði.

„Okkur grunar að ástæðan sé heimildarmyndin þar sem ýjað er að því, með mjög hæpinni röksemdafærslu, að bréfinu hafi verið stolið,“ segir Gísli Geir. „Hluti af bréfinu er á safni. Ef því á að vera stolið hvers vegna var helmingurinn skilinn eftir.“


Tengdar fréttir

200 milljón króna bréf til sýnis í Garðabænum

Hið svokallaða Biblíubréf frá árinu 1876 verður til sýnis á NORDIA 2018 safnarasýningunni sem stendur yfir 8. til 10. júní, en bréfið er metið á 200 milljónir króna. Öflug öryggisgæsla verður á svæðinu allan sólarhringinn yfir helgina.

Hundraða milljóna króna frí­­merkja­­safn til sýnis

600 milljón króna frímerkjasafn og gríðarlega verðmætt safn af peningaseðlum er meðal þess sem verður til sýnis á Stóru safnarasýningunni NORDIA 2023. Vísir leit við í Ásgarði í dag þar sem verið var að setja upp sýninguna.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×